Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Sigríður kjörin formaður Rauða krossins

Adalfundur Rki 2026 5669

Ný stjórn Rauða krossins á Íslandi. Mynd: Davíð Þór

Sigríður Stefánsdóttir var kjörin formaður Rauða krossins á Íslandi til næstu fjögurra ára á aðalfundi félagsins laugardaginn 9. maí. Sigríður var áður varaformaður en hefur verið starfandi formaður síðan um mitt síðasta ár er þáverandi formaður, Silja Bára Ómarsdóttir, lét af formennsku er hún tók við stöðu rektors Háskóla Íslands. Þá var Jón Ásgeirsson kjörinn varaformaður á fundinum. Hann hefur verið starfandi varaformaður frá því í júní í fyrra.

Fjögur viku úr stjórn, þau Ívar Kristinsson, Símon Friðrik Símonarson, Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir og Unnsteinn Ingason. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir sín góðu störf undanfarin ár.

Adalfundur Rki 2026 116

(F.v.) Símon Friðrik, Valgerður Bláklukka og Ívar viku úr stjórn og fengu miklar þakkir fyrir sín góðu störf. Á myndina vantar Unnstein Ingason. Mynd: Davíð Þór

Töluverð endurnýjun varð í stjórninni og voru fimm nýir stjórnarmenn kjörnir, fjórir aðalmenn og einn varamaður. 

Ný stjórn Rauða krossins á Íslandi er að loknum aðalfundi árið 2026 þannig skipuð:
Sigríður Stefánsdóttir formaður, Jón Ásgeirsson varaformaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Herbert Eyjólfsson, Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Ómar Valdimarsson, Óttarr Proppé, Sigurður Ólafsson og Silja Ingólfsdóttir. 

Varamenn: Salvör Ísberg og Árni Jóhannsson.

Ný ársskýrsla Rauða krossins á Íslandi