Almennar fréttir
Styrkur til jólaaðstoðar Rauða krossins
21. desember 2018
Samiðn, Byggiðn og FIT styrktu jólaaðstoð Rauða krossins í vikunni
Samiðn, Byggiðn og FIT styrktu jólaaðstoð Rauða krossins í vikunni. Styrkur félaganna nam 525 þúsund og mun koma sér vel fyrir jólaaðstoðina núna fyrir hátíðarnar. Félögin ákváðu að hætta að senda út jólakort og gefa frekar styrk til góðgerðarmála og hlaut jólaaðstoð Rauða krossins styrk félaganna þetta árið.
Rauði krossinn þakkar kærlega fyrir þetta framlag.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Fjármögnun neyslurýma áskorun um alla Evrópu
Innanlandsstarf 25. júní 2025Þrátt fyrir að neyslurými fyrir vímuefni hafi fyllilega sannað gildi sitt gagnvart bæði einstaklingum og samfélögum glíma þau við sama vandamálið, hvort sem þau eru í Barcelona eða Borgartúni. Starfsfólk skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins sótti upplýsandi ráðstefnu í Strassborg.

Nýtt forvarnarátak: Öryggi barna í sundi
Innanlandsstarf 23. júní 2025„Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum. Félagið hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi í samvinnu við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi.

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Almennar fréttir 19. júní 2025„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi.