Almennar fréttir

Tombóla á Akureyri til styrktar Rauða krossinum

14. september 2022

Þessar ungu stúlkur héldu tombólu við Sundlaugina á Akureyri til styrktar Rauða krossinum.

Þessar ungu stúlkur, Mía Almarsdóttir og Hildur Ágústsdóttir, héldu tombólu við Sundlaugina á Akureyri sunnudaginn 4. september og afhentu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, sem var 11.000 krónur.

Við þökkum þeim kærlega fyrir framlag sitt í þágu mannúðar!