Almennar fréttir
Uppfært 4. maí: Breytingar og raskanir á starfsemi Rauða krossins vegna Covid-19 // Alternative circumstances regarding projects and activities at the Red Cross
04. maí 2020
Verkefni Rauða krossins hafa mörg hver breyst vegna Covid-19 og samkomubanns. Mikið er lagt upp úr að halda þjónustu áfram við skjólstæðinga og fara því samskipti í ákveðnum tilfellum fram í gegnum síma.
Verkefni Rauða krossins hafa mörg hver breyst vegna Covid-19 og samkomubanns. Mikið er lagt upp úr að halda þjónustu áfram við skjólstæðinga og fara því samskipti í ákveðnum tilfellum fram í gegnum síma.
Fréttir af starfinu eru reglulega settar inn á Facebook , Twitter og Instagram.
Eftir 4. maí munu eftirfarandi verkefni fara aftur af stað:
- Félagsstarf umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hafnafirði verður í formi útiverustundar sem kemur í stað fjölskylduviðburðar, Konuhóps og Opins hús.
- Námskeið í Börn og umhverfi hefjast og verða nánast í hverri viku fram á sumar í mörgum deildum.
- Nýtt verkefni sem kallast Gönguvinir, hefur verið sett á fót.
- Afgreiðsla Rauða krossins er opin 9-14 alla virka daga.
- Fataverslunin á Akureyri og fatagámar á Eyjafjarðarsvæðinu opna 4. maí.
Skaðaminnkun og félags- og vinaverkefni
- Konukot er nú opið allan sólahringinn.
- Bílar Frú Ragnheiðar og Ungfrú Ragnheiðar halda áfram sínum ferðum og m.a. veita upplýsingar um og skima um fyrir Covid-19.
- Vin, athvarf fyrir fólk með geðraskanir er hefur nú opnað.
- Skúrar Karla í skúrum í Hafnafirði og Breiðholti eru lokaðir á meðan samkomubanni stendur.
- Prjónahópar hafa verið lagðir af.
- Lokað hefur verið fyrir umsóknir í Sárafátæktarsjóðinn.
- Hundavinir og Heimsóknavinir fara ekki í heimsóknir heldur hringja í gestgjafa sína.
- Félagsvinir eftir afplánun hittast ekki, heldur tala í síma. Opin hús eru ekki í gangi.
- Hægt er að sækja um að fá Símavin hér. Á tímum Covid er hægt að óska eftir tímabundnum símavini sem hringir daglega í stutta stund í senn. Þá er hægt að sækja um símavin sem í framtíðinni hringir tvisvar í viku lengri símtöl.
Starf með fólki af erlendum uppruna
- Information in English for Refugees and Immigrants.
- Opið hús fyrir innflytjendur og flóttafólk verða ekki haldin á næstunni en hægt er að fá aðstoð og upplýsingar með því að senda tölvupóst á soley@redcross.is.
- Engar samverur eru á vegum Æfingin skapar meistarann en vikulegar heimaæfingar koma inná Facebook hóp verkefnisins og annar fróðleikur í tengslum við íslenskuþjálfun og innflytjendamál.
- Opnir viðtalstímar varðandi fjölskyldusameiningar liggja niðri en hægt er að hafa samband við gudrunb@redcross.is fleiri upplýsingar.
- Á virtualvolunteer.org og hér má finna upplýsingar um breytingar varðandi opna viðtalstíma og félagsstarf umsækjenda um alþjóðlega vernd. Einnig eru SMS send út með upplýsingum um þjónustu sem stendur til boða ásamt link á Zoom hittinga þar sem er veittur stuðningur.
- Sjálfboðaliðar í verkefninu Leiðsögumenn flóttafólks eru í stöðugu sambandi við sína félaga í gegnum síma, skilaboð eða myndasamtöl.
Annað
- Fatakort eru ekki afgreidd.
- Sjá má lokanir og raskanir á opnunartíma Rauða kross búðanna hér. Búðir Kvennadeilar á Landspítalanum eru lokaðar.
- Engin námskeið verða haldin á vegum Rauða krossins á næstunni.
- Allir fatagámar Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu eru í notkun.
gerast mannvinur eða tímabundinn sjálfboðaliði
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
„Neyðarástandið er hvergi nærri á enda“
Alþjóðastarf 26. janúar 2026„Meirihluti fólksins á Gaza býr enn við skelfilegar aðstæður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Byggingar eru enn rústir einar. Fjölskyldur syrgja enn ástvini. Margt af því sem þær þekktu áður er horfið. Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er staðráðin í að halda aðstoð sinni áfram.“
Aldrei fleiri samtöl vegna sjálfsvígshugsana
Innanlandsstarf 22. janúar 2026„Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð um að samtölin hafa verið að þyngjast og verða alvarlegri, þá er okkur brugðið yfir heildarsamantekt ársins,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.
Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands
Almennar fréttir 21. janúar 2026„Þróunarsamvinna er grundvöllur friðar, stöðugleika, trausts og öryggis í heiminum,“ skrifa framkvæmdastjórar sex mannúðarfélaga. „Brýnt er að stefna Íslands í varnar- og öryggismálum taki mið af því og að litið verði á öfluga þróunarsamvinnu sem hluta af öryggishagsmunum Íslands.“