Almennar fréttir

Vel heppnaður aðalfundur Rauða krossins um helgina

07. maí 2024

Rauði krossinn á Íslandi hélt aðalfund síðasta laugardag. Farið var yfir starf félagsins síðustu tvö ár, litið til framtíðar, lög endurskoðuð og nýir stjórnarmeðlimir kosnir.

Ný stjórn Rauða krossins á Íslandi.

Aðalfundur Rauða krossins á Íslandi fór fram á Hótel Reykjavík Grand síðasta laugardag, 4. maí. Fundurinn hófst með ávörpum Silju Báru R. Ómarsdóttur, formanns félagsins, og Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra. Ráðherra ræddi um mikilvægi og gildi starfs Rauða krossins og hrósaði því sérstaklega hvernig félagið hefði staðið að opnun og rekstri fjöldahjálparstöðva vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.

Því næst voru sjálfboðaliðarnir Genka Krasteva G. Yordanova, Guðný Björnsdóttir, Gunnar Frímannsson, Sesselja Þórðardóttir, Sveinn Kristinsson og Sveinn Þorsteinsson heiðruð fyrir öflugt sjálfboðastarf sitt fyrir félagið í áraraðir.

Árgjald hækkað og lagabreytingar samþykktar

Að þessu loknu hófust aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. laga um Rauða krossins. Farið var yfir starf og reikninga félagsins síðustu tvö ár, en aðalfundur fer fram á tveggja ára fresti. Einnig var samþykkt hver yrðu helstu verkefni næstu ára, en þar eru ekki gerðar neinar grundvallarbreytingar. Um leið var skipting tekna næstu tvö ár samþykkt og ákveðið að hækka árgjald félagsmanna úr 3.900 kr í 4.500 kr, til að koma til móts við verðbólgu.

Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, og Silja Bára R. Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins. Guðrún ávarpaði fundinn.

Gerðar voru lítils háttar breytingar á lögum félagsins, en þær snerust um leiðréttingar á villum, innleiðingu kynhlutlausara orðalags og smávægilegar efnislegar breytingar. Þessar breytingar voru samþykktar með miklum meirihluta.

Tvær ályktanir voru samþykktar, annars vegar um mikilvægi þess að taka á móti kvótaflóttafólki og hins vegar um áhyggjur af útlendingaandúð. Þær má lesa hér.

Silja Bára R. Ómarsdóttir og Kristín S. Hjálmtýsdóttir ásamt sjálfboðaliðunum Sveini Kristinssyni, Gunnari Frímannssyni, Guðnýju Björnsdóttur, Sveini Þorsteinssyni og Sesselju Þórðardóttur, sem voru heiðruð fyrir áralangt sjálfboðastarf sitt fyrir félagið.

Nýir meðlimir kosnir í stjórn

Loks fóru fram kosningar í störf fyrir félagið. Sigríður Stefánsdóttir var kosin varaformaður félagsins til fjögurra ára, en hún hefur sinnt því hlutverki síðustu tvö ár frá síðasta aðalfundi, og fimm nýir stjórnarmenn voru kosnir til fjögurra ára og einn til tveggja ára.

Nýju stjórnarmeðlimirnir sem voru kosnir til fjögurra ára eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Ingibjörg Á. Bjarnadóttir, Jón Ásgeirsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Óttarr Proppé, en Auðbjörg B. Bjarnadóttir var kosin til tveggja ára. Unnsteinn Ingason og Árni Jóhannsson voru svo kosnir varamenn í stjórn til tveggja ára.