Almennar fréttir
Vinsæl fræðsla um börn á flótta og áhrif áfalla
23. janúar 2023
Markmið fræðslunnar var að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra.

Ríflega sex hundruð manns sóttu fræðslu fyrir kennara um stöðu og réttindi flóttafólks og áhrif áfalla á líðan, heilsu og hegðun barna. Fræðslan var endurtekin tvisvar sinnum, þriðjudaginn 17. janúar og fimmtudaginn 19. janúar. Markmið fræðslunnar var að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra. Kynntar voru hugmyndir að verkfærum og stuðningi sem stendur börnunum til boða. Fræðslan var samstarfsverkefni Barna- og fjölskyldustofu, Kennarasambands Íslands, Rauða krossins og UNICEF á Íslandi, sem ákváðu að taka höndum saman til þess að mæta mikilli eftirspurn skólasamfélagsins eftir fræðslu og stuðningi um málefnið.
Fjöldi barna á flótta á Íslandi hefur aukist hratt á undanförnum árum og árið 2022 varð sérstaklega mikil fjölgun í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Börn á flótta er viðkvæmur hópur sem algengt er að hafi upplifað áföll, og því mikilvægt að umönnunaraðilar þekki helstu einkenni og afleiðingar áfalla á líðan og heilsu barna. Þá er mikilvægt að kennarar og annað starfsfólk skóla geti gripið til gagnlegra verkfæra og leitað eftir stuðningi þegar við á.
Í fræðslunni fór Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi, yfir helstu hugtök sem tengjast börnum á flótta og réttindi barna á flótta. Þá fræddi Sóley Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá Rauða krossinum um orsakir og afleiðingar áfalla og mikilvægi sálfélagslegs stuðnings. Fulltrúar Barna- og fjölskyldustofu, Halla Björk Marteinsdóttir og Elísabet Sigfúsdóttir, kynntu ný lög um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna og þann stuðning sem kennarar geta sótt vegna barna á flótta. Að lokum deildi Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir, fyrrum deildarstjóri Birtu móttökudeildar, reynslu sinni af kennslu og umönnun barna sem sækja um alþjóðlega vernd.
Almenn ánægja var með fræðsluna og ljóst að mikill áhugi er á málefninu innan skólasamfélagsins, og þörf á meiri stuðningi og stefnumótum varðandi móttöku barna á flótta í skólum landsins.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
„Við verðum að brýna raustina“
Almennar fréttir 13. maí 2025„Á tímum sem þessum getum við ekki staðið þögul hjá,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi. „Við verðum að brýna raustina og láta í okkur heyra, hvar sem færi gefst.“

Neyðarsjúkrahúsið: Líflína þúsunda í heilt ár
Alþjóðastarf 09. maí 2025Fjórir Íslendingar hafa starfað um tíma á neyðarsjúkrahúsi Rauða krossins í Rafah á Gaza frá opnun þess fyrir ári. Þörfin fyrir þetta bráðabirgðaúrræði er enn gríðarleg. Þar er alvarlega særðu og veiku fólki sinnt undir drunum frá sprengjuregni í nágrenninu.

Vertu klár á táknmáli
Innanlandsstarf 09. maí 2025Auglýsingar í hinni vinsælu vitundarvakningu Rauða krossins 3dagar.is, þar sem fólk er hvatt til að undirbúa sig fyrir neyðarástand, eru nú líka á táknmáli.