Alþjóðastarf

Rauði krossinn á Íslandi tryggir sálrænan stuðning fyrir íbúa berskjaldaðra samfélaga Sómalílands

08. september 2021

Endurteknar náttúruhamfarir og viðvarandi átök í næstum þrjá áratugi hafa skapað erfiðar aðstæður og áskoranir í hinu sjálfstæða lýðveldi Sómalílandi. Frá árinu 2012 hefur Rauði krossinn á Íslandi starfað með sómalska Rauða hálfmánanum að ýmsum verkefnum, meðal annars með stuðningi utanríkisráðuneytisins

Endurteknar náttúruhamfarir og átök í næstum þrjá áratugi hafa skapað erfiðar aðstæður og áskoranir í hinu sjálfstæða lýðveldi Sómalílandi, sem er í norðvesturhluta Sómalíu. Þessar aðstæður hafa hrakið mikinn fjölda fólks á flótta innan Sómalílands og glímir flóttafólkið ekki aðeins við náttúruhamfarir og óöryggi heldur líka sjúkdóma og faraldra á borð við malaríu, mislinga, kórónuveiruna ofan á vaxandi vannæringu sem er afleiðing af auknum fæðuskorti í landinu. Til að bæta gráu ofan á svart er staða stúlkna og kvenna slæm í landinu enda þótt margt hafi áunnist í þeim efnum og ástæða sé til aukinnar bjartsýni, meðal annars fyrir tilstilli Rauða krossins á Íslandi.

Það er augljóst að aðstæðurnar sem fólkið í Sómalílandi glímir við dag hvern eru afar erfiðar og til lengri tíma hafa þær ekki aðeins neikvæð áhrif á líkamlega heilsu þess heldur einnig verulega neikvæð áhrif á andlega heilsu. Forsenda þess að fólk hafi kraft til að bregðast við erfiðum aðstæðum er að það hafi von og þá skiptir gott geðheilbrigði sköpum. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) er heilbrigðiskerfi Sómalílands eitt það veikburðasta í heimi. Íbúar landsins búa því við afar skert aðgengi að nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og sálfélagslegum stuðningi til að vinna úr erfiðleikum og áföllum. Í grein sem háskólinn í Cambridge birti árið 2019 var það mat sérfræðinga að vopnuð átök, fátækt, atvinnuleysi og víðtæk ofnotkun örvandi efna hafi haft neikvæð áhrif á andlega heilsu íbúa Sómalílands og í raun valdið sprengingu andlegra veikinda þar í landi sem lítið hafi verið fjallað um til þessa (Abdi Abdillahi, Ismail & Singh (2020)). Þá hefur heimsfaraldur COVID-19 einnig haft áhrif og valdið þjóðinni enn meiri berskjöldun gagnvart neikvæðum áhrifum á andlega heilsu og líðan.

\"11_1631113946867\"

Frá árinu 2012 hefur Rauði krossinn á Íslandi starfað með sómalska Rauða hálfmánanum að ýmsum verkefnum, meðal annars með stuðningi utanríkisráðuneytisins. Af þeim verkefnum má sérstaklega nefna færanlega heilsugæslu í Hargeisa sem verið hefur megin langtímaverkefni félaganna. Heilsugæslunni er ætlað að þjónusta um 25 þorp og bæi í nágrenni Hargeisa, höfuðborgar landsins, þar sem íbúafjöldi er um 31.000, og er sem stendur eina heilbrigðisþjónustan sem íbúum svæðisins stendur til boða. Frá upphafi hefur verkefnið miðað að því að sinna bólusetningum, næringarskimunum barna og mæðravernd auk hefðbundinnar heilbrigðisþjónustu og lækninga og fræðslu á sviði heilbrigðis. Það var svo fyrr á þessu ári sem Rauði krossinn á Íslandi, þökk sé styrktaraðilum sínum, gat bætt sálrænum og sálfélagslegum stuðningi við þá fræðslu og þjálfun sem starfsfólk heilsugæslunnar hlýtur.

Sálrænn stuðningur er nauðsynleg þjónusta til að aðstoða einstaklinga í neyð við að upplifa ró og þannig eiga betra með að takast á við aðrar áskoranir. Oft þegar einstaklingar leita sér hefðbundinnar heilbrigðisþjónustu eru áhyggjur þeirra og vanlíðan oft sjáanleg, þeir finna fyrir erfiðum tilfinningum og jafnvel miklu vonleysi. Í þessum aðstæðum er afar mikilvægt fyrir heilbrigðisstarfsfólk að geta veitt sálrænan stuðning og aðstoð. Slíkur stuðningur gengur meðal annars út á að sýna viðbrögðum fólks athygli og beita virkri hlustun samhliða því að sýna samkennd, umhyggju og virðingu. Þjálfunin sem nú er veitt heilbrigðisstarfsfólki og sjálfboðaliðum tryggir skjólstæðingum heilbrigðisþjónustu á hið minnsta fimm landssvæðum Sómalílands aukinn andlegan stuðning. Þessum stuðningi er ætlað að gera íbúa betur í stakk búna til að takast á erfiðar aðstæður og um leið upplifa sig sýnilegri, betur tengda og að á þá sé hlustað.

\"10_1631113946952\"

Þá er talið að verkefnið muni leiða til öruggari og mannúðlegri þjónustu við fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis, kynbundins ofbeldis og þær konur sem orðið hafa fyrir ofbeldi og njóta nú þegar heilbrigðisþjónustu færanlegu heilsugæslunnar.

Það er Rauða krossinum á Íslandi mikið ánægjuefni að geta tekið þátt í þessu mikilvæga verkefni í Sómalílandi og bindur miklar vonir við áframhaldandi árangur þess. Samstarfs- og styrktaraðilum verkefnisins og félagsins alls eru færðar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning sem gera verkefni sem þetta mögulegt.

Heimild: Abdi Abdillahi, F., Ismail, E., & Singh, S. (2020). Mental Health in Somaliland: A critical situation. BJPsych International, 17(1), 11-14. doi:10.1192/bji.2019.14