Fara á efnissvæði

Innanlandsstarf

Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað

20. apríl 2026

Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.

Sigríður Birna er sjálfboðaliði í verkefninu Aðstoð eftir afplánun hjá Rauða krossinum og stendur m.a. fyrir vinsælu Konukvöldunum í fangelsinu á Hólmsheiði.

„Ég er ekki vön að mikla hluti mikið fyrir mér heldur bara stökkva af stað og prófa,“ segir Sigríður Birna Sigvaldadóttir, félags- og afbrotafræðingur, um aðdragandann að því að gerast sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Verkefnið Aðstoð eftir afplánun og Konukvöld í fangelsinu á Hólmsheiði hafa fengið að njóta krafta hennar undanfarin misseri svo eftir hefur verið tekið. Stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins valdi nýverið Sigríði Birnu sem einn af sjálfboðaliðum ársins. „Sigga okkar hefur ávallt sýnt óbilandi áhuga á velferð og réttindum þátttakenda og lifir sannarlega eftir þeim gildum sem við viljum að einkenni starfið okkar,“ segir í rökstuðningi fyrir valinu. „Hennar framlag hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga.“ 

Þegar Sigríður hóf sjálfboðaliðastörfin árið 2019 segist hún hafa átt von á að þau yrðu krefjandi, sem þau geta vissulega verið, „en þetta gaf mér strax meira en mig hefði grunað,“ segir hún. „Það sem kom mér helst á óvart var að sjá árangurinn um leið og verkefnið Konukvöld hófst. Það var svo mikil gleði með verkefnið og við sáum hvað allir ljómuðu eftir kvöldin. Að sjá hversu mikil áhrif svona framlag getur haft er ótrúlegt.“ 

Frábært tækifæri til að kynnast ólíku fólki

Reykvíkingurinn Sigríður Birna er með meistaragráðu í félags- og afbrotafræði og starfar sem forstöðumaður í búsetuúrræði fyrir fatlaða. Í náminu heyrði hún af Rauða kross-verkefninu Aðstoð eftir afplánun og fannst það virkilega áhugavert. Hún þurfti hins vegar að bíða með að komast að sem sjálfboðaliði þar sem hún var ekki orðin 25 ára en í þessu tiltekna verkefni verða sjálfboðaliðar að hafa náð þeim aldri. „En um leið og ég varð 25 þá skráði ég mig,“ segir hún. Á þessum tíma var mikið verið að ræða hvers konar uppbygging þyrfti að eiga sér stað í fangelsiskerfinu „og hvað þessi jaðarsetti hópur hefði verið afskiptalaus í samfélaginu,“ rifjar hún upp. „Mér fannst þetta frábært tækifæri til að vera partur af jákvæðri uppbyggingu, kynnast fólki með ólíkan bakgrunn og að geta látið gott af mér leiða.“

Sigríður Birna hafði ekki starfað lengi sem sjálfboðaliði er hún ásamt fleirum fór að huga að verkefnum fyrir konur í afplánun sérstaklega. Eftir töluverðan undirbúning sem Sigríður tók þátt í var árið 2024 farið af stað með Konukvöld á Hólmsheiði. Markmið verkefnisins er að styðja konurnar sem þar afplána dóma, auka virkni þeirra og styrkja félagsleg tengsl. Á hverjum þriðjudegi fara tveir sjálfboðaliðar í fangelsið og hitta konurnar sem það kjósa. Dagskrá kvöldanna er búin til í samráði við þær og að sögn Sigríðar er reynt að hafa hana fjölbreytta. Langvinsælust eru þó dekurkvöldin, þar sem konurnar setja á sig maska, snyrta neglur og þar fram eftir götunum. „Við erum líka sálfélagslegur stuðningur fyrir þær og erum alltaf til staðar til að hlusta á þær.“

Eykur skilning og samkennd

Að vera sjálfboðaliði hefur verið gagnlegt og gefandi að sögn Sigríðar Birnu, bæði faglega og persónulega. „Það er svo gott að gefa af sér og að leggja sitt af mörkum til þess að hafa jákvæð áhrif á líf fólks,“ segir hún. „Að sjá svona flottan árangur af verkefninu og að upplifa þakklætið svo sterkt frá konunum gefur svo gott í hjartað. Ég er búin að öðlast mikla reynslu í gegnum þessi ár sem hefur mótað mig sem einstakling. Aðalmarkmiðið er samt alltaf að þetta sé að gefa þeim sem þiggja þjónustuna mikið og sé að bæta líf þeirra til hins betra, það gefur mér mest.“ 

Hún mælir með því að gerast sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. „Sjálfboðaliðastarfið styrkir mann í samskiptum og samvinnu og er lærdómsrík reynsla. Ég segi oft að allir ættu að sinna svona störfum þar sem þetta eykur samkennd og skilning á ólíkum hópum samfélagsins sem er nákvæmlega það sem samfélagið okkar þarf. Að sinna sjálfboðaliðastarfi sýnir að maður hafi áhuga á samfélaginu og vilji láta gott af sér leiða án þess að hugsa einungis um eigin ávinning. Sjálfboðaliðar kynnast mörgu ólíku fólki sem kennir manni svo margt. Það er einnig haldið mjög vel utan um mann hjá Rauða krossinum og fær maður alltaf stuðning og pepp þegar þörf er á.“ 

Pexels Anastasia Shuraeva 9501978

Vissir þú að ...

skipulögð sjálfboðastörf geta verið hluti af námi á unglinga-, framhaldsskóla- og háskólastigi? Rauði krossinn á Íslandi tekur reglulega á móti nemendum í sjálfboðastörf í tengslum við nám þeirra.

Allar fyrirspurnir vegna sjálfboðastarfa í tengslum við nám, Erasmus-verkefni og starfsnám má senda á central@redcross.is.