Innanlandsstarf
Ákall um samráð við gerð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga
06. september 2022
Í dag afhenti fjöldi stofnana og samtaka ríkisstjórninni formlega ákall um samráð við gerð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga.
Nú liggur fyrir að Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, muni leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga í fimmta sinn á haustþingi Alþingis og mun frumvarpið vera eitt af fyrstu þingmálunum.
Hinn 19. maí sl. lýsti mikill meirihluti undirritaðra aðila yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum en án árangurs. Líkt og fram kom í viljayfirlýsingunni er nauðsynlegt að útlendingalöggjöfin verði þróuð áfram af ábyrgð og raunsæi til framtíðar. Til að tryggja víðtæka sátt sé mikilvægt að auka traust og gagnsæi um ákvarðanir útlendingayfirvalda, sem og móta skýra og heildstæða stefnu í málaflokknum, enda væri það í anda stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og markmiða hennar.
Í umsögnum um fyrri útgáfu frumvarpsins lýstu umsagnaraðilar frá stofnunum og samtökum yfir skorti á samráði við gerð frumvarpsins auk verulegra vankanta á efni þess. Áríðandi er að mikilvægar lagabreytingar í málaflokknum séu unnar í samráði og samtali við aðila sem starfa við málaflokkinn og hafa til þess sérþekkingu og reynslu. Við vinnslu frumvarpsins sem lagt var fram í vor var lítið horft til þess en núgildandi lög um útlendinga sem tóku gildi í upphafi árs 2017 voru unnin í þverpólitísku og þverfaglegu samráði við hagaðila í málaflokknum. Mikilvægt er að verndarkerfið sé í stakk búið til að mæta þeim aðstæðum sem uppi eru hverju sinni en það er ekki síður mikilvægt að breytingar séu unnar í sátt og samráði við fagaðila.
Í ljósi framangreinds óskum við undirrituð eftir því með þessari sameiginlegu yfirlýsingu að áður en lög sem þessi eru mótuð og skrifuð að samráð verði haft við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma svo lögin tryggi að réttindi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd séu vernduð og virt í hvívetna. Þá fyrst verður hægt að ná þeirri þverfaglegu sátt sem tókst við mótun fyrri laga.
Við skorum því á ríkisstjórnina að dýpka samtalið og samráðið og skipa starfshóp með fulltrúum
hagsmunaaðila í málaflokknum svo hægt verði að ná þeirri faglegu sátt sem áður hefur tekist við mótun laganna.
Geðhjálp
Hjálparstarf kirkjunnar
Íslandsdeild Amnesty International
Kvenréttindafélag Íslands
Landssamtökin Þroskahjálp
Mannréttindaskrifstofa Íslands
Rauði krossinn á Íslandi
Samtökin '78
Siðmennt
Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
UNICEF á Íslandi
UN Women á Íslandi
Þjóðkirkjan
Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
„Neyðarástandið er hvergi nærri á enda“
Alþjóðastarf 26. janúar 2026„Meirihluti fólksins á Gaza býr enn við skelfilegar aðstæður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Byggingar eru enn rústir einar. Fjölskyldur syrgja enn ástvini. Margt af því sem þær þekktu áður er horfið. Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er staðráðin í að halda aðstoð sinni áfram.“
Aldrei fleiri samtöl vegna sjálfsvígshugsana
Innanlandsstarf 22. janúar 2026„Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð um að samtölin hafa verið að þyngjast og verða alvarlegri, þá er okkur brugðið yfir heildarsamantekt ársins,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.
Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands
Almennar fréttir 21. janúar 2026„Þróunarsamvinna er grundvöllur friðar, stöðugleika, trausts og öryggis í heiminum,“ skrifa framkvæmdastjórar sex mannúðarfélaga. „Brýnt er að stefna Íslands í varnar- og öryggismálum taki mið af því og að litið verði á öfluga þróunarsamvinnu sem hluta af öryggishagsmunum Íslands.“