Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Grindvíkingar þökkuðu fyrir framlagið og faðmlagið

Grindavik Neydarvarnir 2

(F.v.) Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi og Sunna Björg Helgadóttir, forstjóri Rio Tinto, afhentu Pétri Markan, bæjarstjóra í Grindavík, tvær milljónir króna til samfélagslegra verkefna við uppgjör á verkefninu Viðnámsþróttur Suðurnesja. Mynd: Nadía Ýr

„Það er frá dýpstu hjartarótum sem ég segi: Takk fyrir þetta framlag og takk fyrir þetta faðmlag og takk fyrir að vera til staðar þegar samfélagið gekk í gegnum þetta áfall,“ sagði Pétur Markan, bæjarstjóri í Grindavík, er fulltrúar bæjarins, Rauða krossins á Íslandi og fyrirtækisins Rio Tinto komu saman í byrjun september í tilefni af því að verkefnið Viðnámsþróttur Suðurnesja, sem Rauði krossinn útfærði í samvinnu við Grindavíkurbæ með fjárstyrk frá Rio Tinto, hefur runnið sitt skeið á enda.

Verkefnið kom til sögunnar þegar Grindavík þurfti sannarlega á hópefli að halda að sögn Péturs. „Og þetta verkefni, sem Rauði krossinn hélt svo fallega utan um og Rio Tinto lagði svo rausnarlega til fjármuni í, er saga af hópefli. Saga af því hvað við getum og hvernig við gerum svo vel þegar við stöndum saman.“

Í apríl árið 2024 veitti Rio Tinto Rauða krossinum á Íslandi 208 milljóna króna styrk til stuðnings samfélagi sem orðið hafði fyrir áhrifum jarðhræringanna í og við Grindavík. Styrkurinn kom úr Hamfarasjóði Rio Tinto sem er sérstaklega ætlað að styðja við samfélög á starfssvæðum fyrirtækisins sem hafa orðið fyrir barðinu á hvers kyns hamförum.

Grindavik Neydarvarnir 1

Sunna Björg Helgadóttir, forstjóri Rio Tinto, þakkaði Rauða krossinum og Grindavíkurbæ fyrir samstarfið.

Verkefnið fékk heitið Viðnámsþróttur Suðurnesja enda var markmiðið að efla viðnámsþrótt fólks í kjölfar hamfaranna. Lögð var mikil áhersla á að efla tengsl, vinna gegn félagslegri einangrun og hlúa að andlegri líðan eftir rýmingu bæjarins. Haldinn var mikill fjöldi námskeiða af margvíslegum toga, samverustundir skipulagðar sem og ferðir fyrir börn og ungmenni. Þá var haldið úti „flakkandi félagsmiðstöð“ og öðru ungmennastarfi og líka svonefndu Mánudagskaffi fyrir Grindvíkinga í höfuðstöðvum Suðurnesjadeildar Rauða krossins í Reykjanesbæ. Ennfremur var í boði fjölbreytt fræðsla og samvera fyrir foreldra, eldri borgara og aðra íbúa og að auki styrkir til samfélagsverkefna. Mörg hundruð Grindvíkingar tóku þátt í þessum viðburðum á tveggja ára starfstíma verkefnisins.

Einstakt verkefni

Styrkurinn var líka nýttur til að efla viðnámsþrótt á Suðurnesjum öllum með fræðslu til íbúa og kaupum á búnaði. „Í dag er bæði þekkingin og búnaðurinn til staðar til að bregðast við stórum krísum á svæðinu,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum. „Styrkurinn frá Rio Tinto hefur því heldur betur nýst vel og skipt gífurlega miklu máli fyrir marga. Í fyrsta skipti eftir hamfarir var nefnilega hægt að bjóða fólki sem þurfti og vildi meiri stuðning en ríkið og sveitarfélögin gátu boðið upp á.“ 

 Samstarfsverkefnið Viðnámsþróttur Suðurnesja var því einstakt á ýmsan hátt. Um var að ræða hæsta styrk sem fyrirtæki hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi til verkefna innanlands sem gerði það að verkum að félagið gat veitt skipulegan og langvarandi stuðning. „Reynslan hefur kennt okkur að endurreisn samfélaga snýst ekki aðeins um að gera við hús og aðra áþreifanlega innviði,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, „heldur að hlúa að fólkinu sjálfu með beinum hætti og til lengri tíma. Að fylgja málum eftir og hefja úrvinnslu eftir stór áföll.“

Hún segir Rauða krossinn telja að verkefnið hafi tekist prýðilega og „okkur finnst það sýna að þegar hið opinbera, atvinnulífið og mannúðarfélög taka höndum saman er hægt að hafa áhrif til góðs“.

Stolt af verkefninu

Sunna Björg Helgadóttir forstjóri Rio Tinto segir fyrirtækið hafa sóst eftir því að fá styrk úr hamfarasjóði móðurfélagsins svo styðja mætti vel við samfélagið í Grindavík. Til að tryggja vandaða umsýslu og úthlutun styrksins var ákveðið að Rauði krossinn héldi utan um alla umsýslu hans. „Gagnsæi og heiðarleiki skipta þar sköpum,“ segir Sunna. „Hjá Rio Tinto erum við mjög stolt af því að hafa átt þátt í þessu og komið því til leiðar að þessi myndarlegi styrkur var veittur. Þótt við séum að ljúka þessu tiltekna verkefni með Grindvíkingum og Rauða krossinum, bíða enn margvíslegar áskoranir við enduruppbyggingu samfélagsins í Grindavík. Við óskum Grindvíkingum öllum alls hins besta á þeirri vegferð.“

Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri hjá Grindavíkurbæ, segir Grindvíkinga hafa sem kunnugt er dreifst víða í kjölfar rýmingar bæjarins í nóvember 2023. „Og samhliða því þurftum við að finna leiðir til að viðhalda tengslum innan samfélagsins,“ segir hann. Þá hafi stuðningur Rauða krossins og Rio Tinto skipt miklu. „Hann gerði Grindvíkingum kleift að eiga góðar stundir saman. Þannig gátum við haldið nánum tengslum hvert við annað á sama tíma og við vorum að aðlagast gjörbreyttum veruleika.“