Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Takk fyrir að hlaupa fyrir okkur!

DSF8749

Sjö hlauparar hlupu samtals 113,3 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins. Tugir hétu á hlauparana okkar og söfnuðust samtals 473.500 krónur sem munu renna til Frú Ragnheiðar og Ylju.

Neyslurýmið Ylja í Borgartúni er skaðaminnkandi úrræði þar sem fólk getur notað vímuefni í öruggu rými. Í Ylju er einnig veitt skaðaminnkandi leiðsögn og lágþröskulda heilbrigðisþjónusta.

Frú Ragnheiður veitir skaðaminnkandi þjónustu í bíl á þremur stöðum á landinu: Á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Suðurnesjum. Verkefnið hefur þann tilgang að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu og í boði er nálaskiptiþjónusta og heilbrigðisþjónusta. Í Frúnni er meðal annars gert að sárum, sýklalyfjameðferð veitt sem og almenn heilsufarsskoðun og ráðgjöf.

Rauði krossinn þakkar hlaupurunum kærlega fyrir stuðninginn.

Untitled Design 2026 08 27T125658.032