Neyðarvarnateymi Rauða krossins og framkvæmdastjóri félagsins æfa sig að nota sólmyrkvagleraugun. Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór
Neyðarvarnateymi Rauða krossins og hópur sjálfboðaliða verður í viðbragðsstöðu vegna sólmyrkvans 12. ágúst. Flest verða þau til taks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum þar sem gert er ráð fyrir að margt ferðafólk komi saman. Íbúar víða á vestanverðu landinu, líklega um 70 prósent landsmanna, munu geta notið almyrkva á sólu frá heimilum sínum og þurfa því ekki að leggjast í ferðalög. Á öðrum svæðum verður deildarmyrkvi.
Rauði krossinn hefur átt gott samstarf við aðra viðbragðsaðila við undirbúninginn síðustu mánuði og nú hafa allir stillt saman strengi. Meðal verkefna Rauða krossins er að hafa til reiðu sérútbúnar kerrur með neyðarvarnabúnaði, s.s. beddum og teppum. Einnig verður stórt tjald til taks á sunnanverðum Vestfjörðum sem hægt er að koma fljótt upp.
En fyrir hvað er Rauði krossinn að undirbúa sig sem gæti orðið til þess að nýta þurfi þennan mannskap og búnað?
„Mottó Rauða krossins er að vera tilbúinn að bregðast við ef hættu- eða neyðarástand skapast og fólk þarf af einhverjum ástæðum á stuðningi okkar að halda,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum. Búast má við því að margt fólk verði á ferðinni á vestanverðu landinu, að umferð bæði minni og stærri bíla verði mikil og það á svæðum sem eru mörg hver viðkvæm og úr alfaraleið. Umferð verður stýrt á nokkrum svæðum og í ofanálag gæti veður með einum eða öðrum hætti haft áhrif á ferðalög fólks. Þá verða mörg skemmtiferðaskip úti fyrir vesturströnd landsins og umferð loftfara gæti einnig orðið meiri en venjulega.
„Ef slys verða eða annars konar áföll henda verður Rauði krossinn tilbúinn til aðstoðar og getur komið upp fjöldahjálparstöð í tjaldinu eða hentugu húsnæði gerist þess þörf,“ segir Aðalheiður. Hún hvetur fólk sem hugsar sér til hreyfings að kynna sér skipulagða áhorfsstaði í sinni heimabyggð sem og fyrirhugaðar öryggisráðstafanir, svo sem umferðarstýringu sem beitt verður um lengri eða skemmri tíma á ákveðnum svæðum. Ítarlegar upplýsingar er að finna á vefnum Island.is. Á vefnum solmyrkvi2026.is má einnig finna fróðleik og gagnlegar upplýsingar.
„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferðinni að leggja tímanlega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenjulegu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stórkostlega sjónarspils sem almyrkvinn verður,“ segir Aðalheiður. „Fólk á faraldsfæti má búast við því að sitja fast í umferð og ætti að útbúa sig til ferðarinnar með það í huga.“
Aðalheiður ítrekar þau skilaboð sem sett hafa verið fram af yfirvöldum: „Með því að velja hentugan stað á eða við heimili okkar til að fylgjast með almyrkvanum getum við í sameiningu lagt okkar af mörkum við að tryggja almannaöryggi og vernd viðkvæmra svæða.“
Rauði krossinn hvetur alla sem vilja veita öðrum aðstoð og stuðning til að gerast sjálfboðaliðar hjá félaginu. Kynntu þér sjálfboðaliðastörf okkar hér.
Hollráð Rauða krossins
Hvort sem þú ætlar að aka stuttan spöl eða leggjast í lengra ferðalag til að njóta almyrkvans þann 12. ágúst skaltu vera undir það búin að ferðin taki lengri tíma en á venjulegum miðvikudegi. Þú verður í félagi við þúsundir úti á vegunum og umferðartafir eru fyrirséðar víða.
- Útbúðu viðlagakassa í bílinn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, vasaljós, lyf, hreinlætisvörur (klósettpappír!), teppi, hlý föt, aukaskó, hleðslubanka fyrir símann og skyndihjálpartösku.
- Fylgstu vel með veðurspá og leiðbeiningum frá yfirvöldum, s.s. um umferðartakmarkanir.
- Fylltu á bílinn (eldsneytistankinn eða rafhlöðuna).
- Leggðu tímanlega af stað og ekki flýta þér heim.
- Mundu eftir sólmyrkvagleraugunum – að horfa beint í sólina getur skaðað augun.



