Innanlandsstarf

Kópavogsdeild Rauða krossins hlýtur styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála

15. apríl 2019

Á föstudaginn í síðustu viku hlaut Kópavogsdeild Rauða krossins styrk fyrir verkefnið Æfingin skapar meistarann frá félagsmálaráðuneytinu úr þróunarsjóði innflytjendamála. 

Á föstudaginn í síðustu viku hlaut Kópavogsdeild Rauða krossins styrk fyrir verkefnið Æfingin skapar meistarann  frá félagsmálaráðuneytinu úr þróunarsjóði innflytjendamála. Verkefnið fékk samtals 700.000 kr. og er markmiðið að þjálfa talmál og auka orðaforða innflytjenda sem hefur hagnýtt gildi í daglegu lífi.

Um er að ræða samstarfsverkefni Rauða krossins í Kópavogi og Mími Símenntunar. Samverur fara fram alla laugardaga kl. 10-12 í húsnæði Mímis.

Sjálfboðaliðar og innflytjendur hittast einu sinni í viku og tala saman á íslensku. Vinsamlega athugið að nauðsynlegt er að hafa einhverja kunnáttu í íslensku. Þátttaka er ókeypis og það eina sem þarf að gera er að mæta.

Rauði krossinn þakkar sjálfboðaliðum og þátttakendum fyrir gott og skemmtilegt samstarf og vill koma á framfæri þakklæti til félagsmálaráðuneytisins fyrir styrkinn.

Nánar um styrkinn má finna hér.