Innanlandsstarf
Kvennadeildin styrkir Ylju um 1,3 milljónir króna
23. mars 2026
Kvennadeild Rauða krossins hefur ákveðið að neyslurýmið Ylja fái að njóta hluta af hagnaði búðanna sem deildin rekur á Landspítalanum. Sem fyrr rennur stærstur hluti hagnaðarins til Landspítalans.
Stjórn Kvennadeildar Rauða krossins hefur ákveðið að styrkja neyslurýmið Ylju um 1,3 milljónir króna. Deildin rekur búðir á bæði Landspítalanum í Fossvogi og við Hringbraut og kemur styrkurinn af söluhagnaði síðasta árs. Líkt og undangengin ár fer stærstur hluti hagnaðarins, eða um 11 milljónir króna, til Landspítalans.
„Við hjá Kvennadeildinni höfum fylgst með því ómetanlega starfi sem fram fer í Ylju af mikilli virðingu,“ sagði Halldóra Ásgeirsdóttir formaður deildarinnar er hún afhenti fulltrúum Ylju styrkinn. „Það er dýrmætt að vita til þess að fólk sem stríðir við fíkniefnavanda hafi hjá ykkur öruggt skjól þar sem mannvirðing og kærleikur eru í fyrirrúmi. Með þessum styrk viljum við styðja ykkar mikilvægu vinnu við að tryggja öryggi og reisn þeirra sem mest þurfa á því að halda.“
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri Höfuðborgardeildar Rauða krossins sem rekur Ylju, færði Kvennadeildinni innilegar þakkir. „Stuðningur sem þessi gerir okkur kleift að efla skaðaminnkandi þjónustu okkar og mæta þörfum skjólstæðinganna með enn betri hætti. Það er okkur mikils virði að finna fyrir þeim samhug sem Kvennadeildin sýnir verkefninu og við metum traustið sem okkur er sýnt mikils.“
Kvennadeildin var stofnuð árið 1966 og fagnar því 60 ára afmæli í ár. Deildin er skipuð sjálfboðaliðum sem sjá alfarið um rekstur búðanna tveggja. Innan deildarinnar er svo starfandi öflugur prjónahópur sem hittist vikulega yfir vetrartímann. Hannyrðir hópsins eru ýmist seldar í búðunum eða á jólabasar deildarinnar.
Um Ylju
Neyslurýmið Ylja er skaðaminnkandi úrræði í Borgartúni í Reykjavík þar sem einstaklingar 18 ára og eldri geta notað vímuefni í öruggara rými. Í Ylju er einnig hægt að fá hreinan búnað fyrir notkun vímuefna, skaðaminnkandi leiðsögn frá starfsfólki og lágþröskulda heilbrigðisþjónustu.
Ylja vinnur eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og markmið þjónustunnar er að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll, óafturkræfan skaða, sýkingar og smitsjúkdóma, að vernda líkamlega og andlega heilsu fólks sem notar vímuefni og auka lífsgæði þeirra.
Í Ylju er lögð áhersla á að virða sjálfræði og sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga sem nota vímuefni, auk þess að mæta notendum þjónustunnar án fordóma. Ekki er krafist þess að fólk hætti að nota vímuefni sem forsenda fyrir stuðningi eða þjónustu.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.