Halldóra Kristín er natin, hlýleg og afar þolinmóð, segir m.a. í rökstuðningi stjórnar Rauða krossins. Mynd: Sunna Ósk
„Ég hef alltaf haft gaman af mannlegum samskiptum og félagsskap,“ segir Halldóra Kristín Guðjónsdóttir sem valin var einn af sjálfboðaliðum ársins hjá höfuðborgardeild Rauða krossins. „Lengi var ég með það á bak við eyrað að gerast sjálfboðaliði en var, eins og sagt er, á hjóli lífsins og gerði ekkert í því. Leyfði lífinu bara að fljóta áfram. Árið 2020 varð ég fyrir því áfalli að missa son minn. Í kjölfarið fór ég að hugsa um hversu lífið er stutt. Það er of stutt til að láta góða hluti bíða. Og þá ákvað ég að láta verða af því að gerast sjálfboðaliði.“
Halldóra, sem er sjálfboðaliði í vinaverkefnum Rauða krossins, er „natin, hlýleg og afar þolinmóð manneskja sem er mikill styrkur fyrir starfið og skilur eftir sig jákvæð áhrif,“ segir m.a. í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar fyrir valinu. Hún sinnir verkefnum sínum af fagmennsku, umhyggju og mikilli alúð.
Halldóra er Reykvíkingur í húð og hár. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og rekur fyrirtæki sem sér um bókhald og uppgjör fyrirtækja. Fyrir nokkrum árum bætti hún við sig menntun og lauk diplómanámi í sálgæslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands. „Þetta nám er tær snilld,“ segir hún. Námið hafi nýst henni vel í bæði leik og starfi, hafi dýpkað skilning hennar á mannlegum samskiptum og áhrifum áfalla og úrvinnslu þeirra. „Námið efldi mig og ýtti mér formlega af stað í sjálfboðaliðastörfin.“
Vildi styðja við einmana fólk
Vorið 2022 sótti Halldóra um að verða sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. „Mig langaði að styðja við einstaklinga sem eru einmana,“ segir hún. „Mér er hugleikinn sá einmanaleiki sem er í samfélaginu okkar og þau áhrif sem hann hefur á heilsu okkar, bæði andlega og líkamlega. Mig langaði að sjá hvort ég gæti unnið gegn félagslegri einangrun, þótt ekki væri nema hjá einni manneskju og þannig bætt líf hennar lítillega.“
Segja má að það markmið Halldóru hafi svo sannarlega tekist. „Hún ber hag gestgjafa síns fyrir brjósti og sýnir ávallt hlýju, virðingu og einlægan áhuga á velferð hans,“ segir m.a. í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar fyrir því að velja Halldóru í hóp sjálfboðaliða ársins. „Samskipti hennar við gestgjafann eru til fyrirmyndar og bera vott um traust, þolinmæði og mannlegan skilning.“
Kaffihúsið fastur liður
Í vinaverkefnum Rauða krossins hittast sjálfboðaliði og gestgjafi, þ.e. manneskja sem óskað hefur eftir félagslegum stuðningi. Halldóra hittir sinn gestgjafa vikulega í um tvær klukkustundir í senn. „Það er fastur liður hjá okkur að fara á kaffihús,“ segir Halldóra. Þær hlusti einnig mikið á tónlist og skoði saman ljósmyndir á netinu, svo eitthvað sé nefnt. „Svo spjöllum við um hvað á daga hennar hefur drifið.“
Gestgjafinn hafi kynnt Halldóru fyrir margs konar tónlist, bæði erlendri og innlendri, og þannig víkkað sjóndeildarhring hennar. „Ég hef lært heilmargt af henni. Hún hefur marga dásamlega eiginleika og talar til dæmis ekki illa um nokkurn mann. Það er eitthvað sem við getum öll tekið okkur til fyrirmyndar.“
Halldóra segist hafa hafið sjálfboðaliðastarfið með þær væntingar að láta gott af sér leiða og „þannig leggja eitthvað til samfélagsins,“ líkt og hún orðar það. En það hefur líka ýmislegt komið henni á óvart. „Þakklætið sem ég finn fyrir hjá mínum skjólstæðingi hefur komið mér ánægjulega á óvart en líka hvað það þarf lítið til að gleðja aðra og létta þeim lífið þótt ekki sé nema stutta stund.
Sjálfboðaliðastörfin hafa fært mér góða vináttu en einnig hafa þau eflt mig félagslega, aukið mér sjálfstraust og kennt mér þakklæti. Ég mæli sannarlega með því að fólk gerist sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum. Þetta er mjög gefandi starf sem eflir sjálfsmynd og vellíðan.“

Vissir þú að ...
Rauði krossinn er stöðugt að leita að fleiri sjáfboðaliðum í alls konar verkefni? Félagsverkefni okkar snúast um að tengja fólk saman, þar sem sjálfboðaliðar gefa klukkustund á viku af tíma sínum í eitt ár. Verkefnið felst ekki í stórum aðgerðum eða flóknum verkefnum, heldur í einföldum augnablikum sem skipta miklu máli. Kaffibolli, göngutúr eða símtal getur haft djúpstæð áhrif á þann sem fær stuðninginn.



