Fara á efnissvæði

Innanlandsstarf

Langar þig að láta gott af þér leiða og taka þátt í fjölbreyttum og gefandi verkefnum á Austurlandi?

14. apríl 2026

Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða.

Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu. Námskeiðin eru tilvalin fyrir þau sem eru að velta því fyrir sér að taka þátt í sjálfboðastarfi, en ekki er gerð krafa um þátttöku að námskeiði loknu. Námskeiðin eru einnig tækifæri fyrir núverandi sjálfboðaliða sem vilja efla sig í hlutverki sínu.  

Á námskeiðunum færðu innsýn í markmið Rauða krossins og verkefni sjálfboðaliða, kynnist aðferðum sálrænnar fyrstu hjálpar og verkefnum heimsóknavina, ásamt neyðarvörnum hjá Rauða krossinum og hlutverki innan Almannavarna. 

Frekari upplýsingar um einstök námskeið má nálgast með því að smella á hlekkina hér að neðan eða með því að senda póst á sjalfbodalidar@redcross.is  

Grunnnámskeið Rauða krossins haldið 20. apríl, frá 16:00 til 17:30

Námskeiðið er ætlað sjálfboðaliðum og starfsfólki, en er einnig opið öllum sem vilja kynnast starfi og gildum Rauða krossins. Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í upphaf og þróun alþjóðlegu Rauða kross hreyfingarinnar, grunngildi hennar og mannúðarhlutverk. Einnig er fjallað um markmið og stefnu Rauða krossins á Íslandi og hvernig félagið velur og forgangsraðar verkefnum sínum út frá þörfum samfélagsins. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk sjálfboðaliða og mikilvægi þeirra í starfinu, auk þess sem þátttakendur eru hvattir til að tengja efnið við eigin reynslu og framtíðarþátttöku í starfi félagsins.

Skráning

Nýliðanámskeið félagslegra verkefna (vinaverkefni) haldið 20. apríl, frá 18:00 til 19:30

Hlutverk sjálfboðaliða er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og hlýju. Í námskeiðinu verður farið nánar yfir verkefnin og fræðst um ýmislegt þeim tengdum, s.s. félagslega einangrun og góð samskiptaform.

Skráning

Sálrænn stuðningur haldið 21. apríl, frá 16:30 til 19:30

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir sálrænnar fyrstu hjálpar til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sú færni getur hjálpað þér að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.

Á námskeiðinu eru þátttakendur kynntir fyrir undirstöðuatriðum í sálrænni fyrstu hjálp. Það hentar öllu starfsfólki og sjálfboðliðum sem sinna sálfélagslegum stuðningi sem og öðrum sem veita fólki stuðning.

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist: þekkingu um sálræna fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki, frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan, skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“, færni í að veita sálræna fyrstu hjálp, skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum og mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra.

Skráning

Inngangur að neyðarvörnum haldið 28. apríl frá 17:00 til 19:00

Námskeiðið ,,Inngangur að neyðarvörnum" verður haldið fimmtudaginn 28. apríl í húsnæði Rauða krossins í Múlasýslu að Dynskógum 4 Egilsstöðum. . Námskeiðið er ætlað fyrir þau sem vilja gerast sjálfboðliðar Rauða krossins í opnun fjöldahjálparstöðva. Námskeiðið hefst klukkan 17:00 og lýkur klukkan 19:00. Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að vefmyndavél og míkrafón. Ókeypis er á námskeiðið.
Helstu efnistök:

  • Kynning á neyðarvörnum Rauða krossins og helstu verkefnum
  • Opnun fjöldahjálparstöðvar
  • Samantekt og umræður