Innanlandsstarf
Nýr búnaður til taks
23. febrúar 2026
Búnaðarhópur Rauða krossins á Íslandi fyllti nýverið heilan gám af nýjum beddum, teppum og barnarúmum. Búnaðurinn er til taks ef opna þarf fjöldahjálparstöðvar.
Þúsund nýjum beddum, 730 teppum og tíu barnarúmum hefur verið komið fyrir í gámi sem er nú til taks ef opna þarf fjöldahjálparstöðvar og er liður í að auka viðbragðsgetu Rauða krossins. Auk þess er búnaður aðgengilegur hjá deildum Rauða krossins um allt land. „Fjöldahjálparstöðvar getur þurft að opna með litlum fyrirvara vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara,“ segir Atli Örn Gunnarsson, umsjónarmaður neyðarvarnarbúnaðar hjá Rauða krossinum. „Þess vegna skiptir miklu máli að búnaður eins og beddar og teppi séu ávallt til reiðu og á vísum stað.“
Búnaðarhópur Rauða krossins, sem Atli er í ásamt tveimur sjálfboðaliðum, þeim Liv Sjömoen og Sigurði G. Bjarnasyni, gekk frá nýja búnaðinum í gáminn nýverið. Hópurinn hefur það hlutverk að passa upp á að búnaður félagsins sé í góðu ásigkomulagi, að nóg sé til af honum og að hann sé aðgengur. Þá sér hópurinn einnig um að koma búnaðinum upp í fjöldahjálparstöðvum þegar þær eru opnaðar á suðvesturhorni landsins. Vel gekk að koma búnaðinum fyrir í gámnum enda vösk sveit að verki.
Í stoðhlutverki við stjórnvöld
Rauði krossinn á Íslandi gegnir stoðhlutverki við stjórnvöld í almannavörnum. Hlutverk félagsins felst meðal annars í opnun og starfrækslu fjöldahjálparstöðva, söfnunarsvæða aðstandenda og skráningarstöðva, úrvinnslu skráninga, sálfélagslegum stuðningi og aðkomu að rekstri þjónustumiðstöðva almannavarna.
Neyðarvarnir eru landsdekkandi verkefni og félaginu ber skylda til að sinna þeim um land allt. Landsskrifstofa Rauða krossins, sem er með aðsetur í Efstaleiti 9 í Reykjavík, fer með samræmingarhlutverk og sinnir þjónustu við deildir sem eru framkvæmdaraðilar.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.