Innanlandsstarf
Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið
10. febrúar 2026
„Okkur hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum er annt um að ungmennin í samfélaginu okkar öðlist aukið sjálfstraust og öryggi til að bregðast við óvæntum aðstæðum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á Suðurnesjum.
Rauði krossinn býður öllum ungmennum á aldrinum 12–16 ára sem búsett eru á Suðurnesjum á skyndihjálparnámskeiðið Bjargvættir - viðnámsþróttur. Námskeiðin eru 3-4 klukkustundir að lengd og verða haldin reglulega næstu vikur og mánuði. Þátttaka er ókeypis en krefst skráningar. Kennsla er í höndum reyndra leiðbeinenda í skyndihjálp.
„Okkur hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum er annt um að ungmennin í samfélaginu okkar öðlist aukið sjálfstraust og öryggi til að bregðast við óvæntum aðstæðum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á Suðurnesjum. „Það mun leiða til sterkara og öruggara samfélags til framtíðar.“
Jarðhræringar á Reykjanesi á undanförnum árum hafa skekið innviði og haft í för með sér fólksflutninga. Vegna þessara áfalla hefur Rauði krossinn lagt sig fram við að hlúa að Suðurnesjabúum og auka viðnámsþrótt þeirra og hefur notið stuðnings fyrirtækisins Rio Tinto við það verkefni.
„Á Bjargvættanámskeiðinu okkar læra ungmennin skyndihjálp til að bregðast við í neyð en sú færni valdeflir fólk einnig á öðrum sviðum,“ segir Fanney. Námskeiðin eru sérstaklega útfærð með ungmenni á Suðurnesjum í huga. „Á námskeiðinu fá þau því líka verkfæri til að takast á við stærri atburði og auka viðnámsþrótt.“
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Rauða krossins á Suðurnesjum að Smiðjuvöllum 9, Reykjanesbæ.
Hægt er að skrá sig á námskeiðin á heimasíðu Rauða krossins, raudikrossinn.is.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.