Innanlandsstarf

Rauði krossinn í Kópavogi hefur störf á ný eftir sumarfrí

12. ágúst 2019

Eftir ánægjulegt sumarfrí ríkir mikil tilhlökkun fyrir komandi verkefni og eru mörg áhugaverð verkefni í boði. Það verður gaman að hefja vinnu að nýju með sjálfboðaliðunum okkar og vonandi bætast nýjir við hópinn.

Helstu verkefni Rauða krossins í Kópavogi eru:

Heimsóknarvinir – Félagsleg einangrun er algengari en marga grunar. Heimsóknarvinir Rauða krossins heimsækja fólk á einkaheimili, sambýli, dvalarheimili og stofnanir með það markmið að rjúfa félagslega einangrun.

Hundavinir - Hundavinaverkefni Rauða krossins hefur notið mikilla vinsælda þar sem oft geta hundar náð öðruvísi til fólks og veita gleði og ánægju. Fólk á öllum aldri nýtur samvistanna við hundana og að sjálfsögðu eigendur þeirra líka.

Símavinir – Stutt samtal getur skipt sköpum í lífi fólks og allir geta fengið símavin óháð búsetu. Símavinir Rauða krossins hringja í þátttakendur tvisvar í viku og þeir spjalla saman í allt að 30 mínútur.

Föt sem framlag – Sjálfboðaliðar þessa verkefnis prjóna og sauma föt í pakka sem sendir eru til þeirra sem á þurfa að halda.

Æfinging skapar meistarann er verkefni þar sem sjálfboðaliðar og innflytjendur hittast einu sinni í viku og tala saman á íslensku. Markmiðið er að þjálfa talmál og auka orðaforða fólks sem hefur hagnýtt gildi í daglegu lífi.

Brjótum ísinn – bjóðum heim er verkefni þar sem íslenskar fjölskyldur bjóða innflytjendum heim eina kvöldstund í kvöldverð eða spjall. Þetta verkefni er einfalt og skemmtilegt og þar að auki er það góð leið til að eignast nýja vini.

Félagsvinir eftir afplánun er nýjasta verkefni Rauða krossins þar sem unnið er í þágu fanga sem vilja hefja nýtt líf án afbrota. Sjálfboðaliðar aðstoða með hin ýmsu mál þegar afplánun lýkur.

Rauði krossinn í Kópavogi býður reglulega upp á fjölbreytt námskeið í skyndihjálp, bæði fyrir börn og fullorðna. Allar upplýsingar um námskeiðin má finna inn á skyndihjalp.is

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessum skemmtilegu verkefnum getur þú haft samband við Rauða krossinn í Kópavogi í síma 570-4060 eða á kopavogur@redcross.is






























































\"RKK-hus\"