Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Sjálfboðaliði á tíræðisaldri mætir flóttafólki með húmor og hlýju

James Breidd

Aðalsmerki James eru púsl og gestaþrautir sem hann safnar og kynnir reglulega fyrir þátttakendum.

James Arthur Rail er 92 ára sjálfboðaliði hjá höfuðborgardeild Rauða krossins á Íslandi og hefur í tíu ár tekið þátt í félagsstarfi fyrir hælisleitendur og annað flóttafólk. Með hlýju, húmor og sköpunargleði hefur hann hjálpað fjölmörgum á erfiðum tímum með því að létta lund þeirra og skapa skemmtilega og uppbyggilega samveru á einu síðdegi í hverri viku. Markmiðið var að rjúfa félagslega einangrun þessa viðkvæma hóps, efla tengsl, sjálfstraust og tilfinningu fyrir samfélagi.

Hann hóf sín sjálfboðastörf hjá félaginu árið 2016 eftir ábendingu frá barnabarni sínu sem einnig var sjálfboðaliði á þeim tíma. Hann byrjaði í Opnu húsi fyrir hælisleitendur sem þá fór fram á aðalskrifstofu Rauða krossins í Efstaleiti á miðvikudagseftirmiðdögum. Þá fylltist húsið af fólki, mat og miklu fjöri, og minnist James þess að standa með píluspjald á ganginum og stýra leikum.

Aðalsmerki hans eru púsl og gestaþrautir sem hann safnar og kynnir reglulega fyrir þátttakendum og urðu fastur og vinsæll liður í starfinu. Stundum, segir James, hefur fólk aldrei kynnst neinu þessu líku áður en það kviknar á peru og fólk hefur áhuga á að æfa þennan hæfileika og heillast af því að leysa þessi fjölbreyttu verkefni.

Einnig er James mikill útivistarmaður og minnist hann þess að fara með hópa í frisbígolf, skoðunarferðir um borgina og að hafa heimsótt Húsdýragarðinn með hópnum.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan James hóf störf í Efstaleitinu. Það segir sitt að síðan James byrjaði hefur verkefnið flutt í húsnæði Rauða krossins við Strandgötu í Hafnarfirði, svo í samfélagshúsið Árskóga í Breiðholti og þá á Vitatorg þar sem það hefur verið undanfarin ár. 

Á árinu 2025 sögðu stjórnvöld upp samningi við Rauða krossinn um félagslegan stuðning við umsækjendur um vernd og eru verkefnin enn á ný að taka breytingum í kjölfar þess. En James segist ávallt tilbúinn að vera til staðar og gera gagn og heldur ótrauður áfram sjálfboðaliðastarfinu.