
Þegar hættu- eða neyðarástand skapast getur reynst þörf á að opna fjöldahjálparstöðvar. Það hlutverk er í höndum Rauða krossins á Íslandi. Mynd: Rauði krossinn/Davíð
Það er rafmagnslaust um allt land! Og viðbragðsaðilar óska eftir því að Rauði krossinn opni fjöldahjálparstöðvar sem víðast. Skal gert!
En hvernig?
„Þegar við erum beðin að opna fjöldahjálparstöð þá eru sjálfboðaliðar á viðkomandi svæði ræstir út,“ segir Jakob Smári Magnússon, neyðarvarnafulltrúi hjá Rauða krossinum. „Sjálfboðaliðarnir eru sérstaklega þjálfaðir í opnun fjöldahjálparstöðva og ganga því fumlaust til verka með stuðningi Rauða krossins en það er þó ákveðið vandamál sem við glímum við. Okkur vantar fleiri sjálfboðaliða.“
Laugardaginn 3. október heldur Rauði krossinn stóra æfingu í opnun fjöldahjálparstöðva í rafmagnsleysi um allt land. Æfingin kallast Skjól 2026 og hefur tvenns konar tilgang: Að æfa sjálfboðaliða í að opna og starfrækja fjöldahjálparstöð og að hvetja fleiri til að gerast sjálfboðaliðar í sinni heimabyggð.
„Það er ekki tímafrekt að vera sjálfboðaliði í neyðarvörnum Rauða krossins,“ segir Jakob sem gerir sér grein fyrir því að nútímafólk sé margt hvert mjög upptekið. „En það er mjög gefandi að styðja við nærsamfélagið sitt. Það er líka sannað að ekkert fyllir okkur jafn auðveldlega og hratt ánægju og að hjálpa öðrum. Það þekkja okkar sjálfboðaliðar af eigin raun.“
Hann bætir við að það að gefa vinnu sína í þágu annarra sé einnig góð jarðtenging – góð núvitundaræfing – í því hraða samfélagi sem við búum í.

Æfingin Skjól 26 verður haldin 3. október milli kl. 11 og 13 víða um land. Grafík: Davíð
Eitt af lögbundnum skylduverkefnum Rauða krossins á Íslandi er að opna fjöldahjálparstöðvar þegar þörf er á. Um 500 sjálfboðaliðar félagsins hafa fengið þjálfun í neyðarvörnum og að opna fjöldahjálparstöðvar. Á undanförnum árum hafa verið opnaðar fjöldahjálparstöðvar vegna rýminga, ofanflóða og hópslysa svo eitthvað sé nefnt. „Lykilatriði er að hafa á að skipa þéttu neti sjálfboðaliða sem geta brugðist við þegar eitthvað hendir í þeirra heimabyggð,“ segir Jakob. „Víða um landið er skortur á sjálfboðaliðum sem þýðir að við getum ekki sinnt þessu verkefni okkar eins og við viljum og þurfum að gera.“
Tilgangur fjöldahjálparstöðva er að veita þolendum öruggt húsaskjól ásamt mat og stuðningi eftir þörfum. Einnig er þar veittur sálrænn stuðningur, skyndihjálp veitt ef þarf og upplýsingar um atburðinn sem á sér stað.
Rauði krossinn er með búnað tiltækan um land allt sem komið er fyrir í 28 fjöldahjálparkerrum víðs vegar um landið. Í þeim er allt það helsta sem þarf til að opna fjöldahjálparstöð, til dæmis beddar, teppi, skyndihjálparbúnaður, rafstöð og fleira.
Þjálfun sjálfboðaliða
„Sjálfboðaliðarnir okkar sækja námskeið þar sem við kynnum verkferlana, búnaðinn og fleira,“ segir Jakob. „Þeir fá einnig námskeið í skyndihjálp og sálrænum stuðningi. Þeir eru mikilvægur partur af almannavörnum og vinna sitt starf í samráði við neyðarmiðstöð Rauða krossins. Allir okkar sjálfboðaliðar eru tryggðir við störf sín sem sjálfboðaliðar.“
Hann tekur fram að sjálfboðaliðum sé ekki skylt að rjúka til í hvert skipti sem kall kemur. „Ef þú kemst ekki þá skiljum við það. Við sendum út neyðarboð á sjálfboðaliðana okkar og þau mæta sem komast. Þess vegna er gott að hafa fleira fólk til að sinna verkefninu ef og þegar þess þarf.“
Rauða kross-deildir víða um land
Um allt land eru starfræktar deildir Rauða krossins. Hjá þeim er hægt að kynna sér sjálfboðastörf og hvað í þeim felst. Æfingin Skjól 2026, sem verður haldin um allt land laugardaginn 3. október, er frábær vettvangur til að kynna sér starf Rauða krossins á hverjum stað. „Það verður rafmagnslaust en bara í þykjustunni í þetta skiptið,“ segir Jakob kíminn. „Við bjóðum öll sem vilja kynna sér starfsemina hjartanlega velkomin í fjöldahjálparstöðvarnar sem við ætlum að æfa okkur í að opna.“
Hér að neðan getur þú skráð þig til þátttöku í Skjóli 26 í þinni heimabyggð. Æfingin verður haldin 3. október milli kl. 11 og 13:
Höfuðborgardeild: Efstaleiti 9, Reykjavík
Skagafjarðardeild: Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju
Hveragerðisdeild: Rauði krossinn, Mánabraut 1
Þingeyjasýsludeild: Borgarhólsskóli, Húsavík
Eyjafjarðardeild: Menntaskólinn á Tröllaskaga, Ólafsfirði
Árnessýsludeild: Rauða kross húsið, Eyrarvegi 23, Selfossi
Suðurnesjadeild: Gerðaskóli, Garði
Múlasýsludeild: Egilsstaðaskóli
Rauði krossinn við Djúp: Grunnskólinn í Bolungarvík



