Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Smíði átta nýrra box-sjúkrabíla á lokametrunum

BOX1 Breidd

Allt að verða kárt! Rauða kross-merkið þegar komið á kassann á þessum box-sjúkrabíl sem leggur svo bráðum af stað yfir hafið til Íslands.

Smíði átta svokallaðra box-sjúkrabíla (sjúkrabíla með kassa) fyrir Rauða krossinn á Íslandi er vel á veg komin í verksmiðjum BAUS AT í Póllandi. Fastus ehf. selur Rauða krossinum bílana í kjölfar útboðs sem fram fór árið 2024. Áætlað er að bílarnir komi til Íslands í lok nóvember.

Um er að ræða stærstu einstöku viðbót box-sjúkrabíla við sjúkraflutninga hér á landi til þessa. „Með tilkomu bílanna verður stigið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og endurnýjun sjúkrabílaflotans,“ segir Marínó Már Marinósson, verkefnastjóri sjúkraflutninga hjá Rauða krossinum. Box-sjúkrabílar bjóða upp á rúmgott vinnuumhverfi í sjúkrarými og eru ætlaðir til að mæta kröfum sjúkraflutninga við fjölbreyttar aðstæður.

Gert er ráð fyrir að fimm bílanna verði staðsettir á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði einn bíll í Reykjanesbæ, einn á Akureyri og einn á Selfossi.

BOX 3 Breidd

Box-bílarnir eru rúmbetri en þeir hefðbundnu sjúkrabílar sem við þekkjum af götum landsins. Þeir verða því mjög góð viðbót við sjúkrabílaflotann.

„Næstu skref felast í að ljúka smíði og frágangi bílanna áður en þeir verða fluttir til landsins. Eftir komu tekur við undirbúningur fyrir skráningu, búnaðaruppsetningu og afhendingu til notkunar,“ segir Marinó.

Rauði krossinn á Íslandi heldur utan um og á sjúkrabílaflota landsins samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Í því felst að Rauði krossinn útvegar og annast innkaup á sjúkrabílum auk þess að reka bifreiðarnar og tækjabúnað til sjúkraflutninga.

}