Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Til hamingju með 17 ára afmælið, Frú Ragnheiður!

Fruragnheidur Myndataka Mai2026 5988

Á hverri vakt Frú Ragnheiðar á höfuðborgarsvæðinu eru þrír sjálfboðaliðar. Mynd: Rauði krossinn/Davíð

Sóley Kristín Guðbjartsdóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar, skrifar:

Hún á afmæli í dag, Frúin okkar góða, sem hefur nú í heil sautján ár farið um höfuðborgarsvæðið og aðstoðað og yljað fólki sem í hana sækir. Frúin hóf ferðalag sitt í hjólhýsi tvö kvöld í viku og hlúði – og hlúir enn – að samferðafólki sínu sem oft hefur verið ýtt út á jaðar samfélagsins og finnst það ekki tilheyra. En hún lætur sig velferð einmitt þessa fólks helst varða, mætir því á þeirra forsendum – þar sem það er statt hverju sinni.

Það kom fljótt í ljós eftir að Frúin hóf vegferð sína að hennar var þörf víðar um land. Hún hóf því einnig að fara til fólks á Akureyri og Suðurnesjum. Veita því stuðning. Búa um sár þess.

Hún er algjörlega fordómalaus. Fer ekki í manngreiningarálit. Fólkið hennar er margt hvert með mörg áföll í bakpokanum og hún tekur fullt tillit til þess. Sýnir þolinmæði, virðingu og ómældan skilning. Aðstoðar og hlustar án þess að dæma. Því það er svo mikilvægt að hlusta. Þannig sköpum við traust og öryggi.

Fruragnheidur Myndataka Mai2026 6283

Frúin á ferð um höfuðborgarsvæðið. Mynd: Rauði krossinn/Davíð

Þetta gæðablóð er hún Frú Ragnheiður. Hið hreyfanlega skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins sem hefur frá upphafi opnað dyr sínar og hjarta fyrir þeim hópum í íslensku samfélagi er hafa oft mætt skilningsleysi og fordómum af samborgurum sínum og okkar sameiginlegu kerfum sem eiga að grípa okkur þegar eitthvað bjátar á. Þess vegna hefur Frú Ragnheiður líka lagt sig fram við að fræða landsmenn alla um skaðaminnkun. Hversu mikilvægt það er að sýna öðrum virðingu og huga að reisn fólks, þörfum, væntingum og vonum.

Í dag ekur Frúin okkar góðhjartaða um höfuðborgarsvæðið alla daga vikunnar nema laugardaga. Um borð eru sjálfboðaliðar. Þessir yndislegu sjálfboðaliðar, sem gefa af tíma sínum og hjartahlýju til skjólstæðinga Frú Ragnheiðar af fagmennsku og næmni fyrir ólíkum aðstæðum þeirra sem til hennar leita. Sjálfboðaliðarnir eru 95 talsins í dag en í gegnum árin hafa tugir til viðbótar komið að þjónustunni með einum eða öðrum hætti.

Sex kvöld í viku fer Frúin til fundar við fólk sem þarf á stuðningi og nærveru að halda í þeim tilgangi að vernda heilsu, draga úr skaða og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll meðal fólks sem notar vímuefni.

Einhverjir hváðu þegar hugtakið skaðaminnkun heyrðist fyrst frá Frú Ragnheiði. Það hefur vissulega breyst og flestir hafa heyrt hugtakið í dag en þekkja kannski ekki vel hvað það þýðir í verki. Skaðaminnkun felur í sér að bregðast við þeim hættum sem geta fylgt vímuefnanotkun og leita leiða til að draga úr þeim. Þannig getum við stutt fólk við að vernda heilsu sína og auka öryggi, hver sem staða þess er og hvaða skref það er tilbúið að taka.

Hjá Frú Ragnheiði fær fólk meðal annars öruggan búnað og getur skilað notuðum búnaði til öruggrar förgunar. Þar er veitt lágþröskulda heilbrigðisþjónusta, sálrænn stuðningur og aðstoð við að tengjast annarri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða annarri þjónustu. Nýjasta viðbótin er efnagreining en í henni felst að fólk geti fengið staðfestingu á því sem efnin þeirra innihalda.

Þetta er það sem átt er við með lágþröskuldaþjónustu, að gera leiðina að aðstoð eða stuðningi eins greiða og hægt er. Þjónustan tekur mið af aðstæðum fólks og þörfum þess. Með því að fara út á vettvang getum við náð til einstaklinga sem eiga erfitt með að sækja sér aðstoð annars staðar.

Sautján ára afmæli Frú Ragnheiðar er tilefni til að gleðjast yfir því sem hefur verið byggt upp. Það er líka tilefni til að minna á sameiginlega ábyrgð okkar á því að fólk hafi aðgang að þjónustu, öryggi og mannúð.

Við þurfum að tryggja skaðaminnkandi þjónustu, traustan grundvöll og greiðar leiðir áfram í heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning og meðferð. Við þurfum líka að vanda orð okkar og framkomu gagnvart fólki sem notar vímuefni. Virðing á að fylgja allri þjónustu.

Frú Ragnheiður hefur í 17 ár rétt fólki hjálparhönd. Á afmælisdaginn eru skilaboðin skýr: Líf hvers og eins skiptir máli og aðstoð á að vera aðgengileg öllum þegar hennar er þörf.

Á þessum tímamótum viljum við þakka þeim sem hafa byggt upp þjónustu Frú Ragnheiðar. Sjálfboðaliðarnir okkar eru kjarninn í verkefninu og hafa, vakt eftir vakt, skapað rými til að mæta fólki af virðingu, hlýju og án fordóma.

Fyrst og fremst viljum við þakka öllum þeim sem hafa leitað til Frúarinnar og hafa treyst okkur. Þeim sem hafa deilt sögu sinni, þegið aðstoð eða einfaldlega þurft einhvern til að hlusta. Þeirra reynsla, þarfir og hugmyndir hafa mótað verkefnið og hjálpað okkur að gera betur vakt eftir vakt. Þeir eru hjartað í verkefninu.

Frú Ragnheiður er ekki bara bíll eða nálaskiptaþjónusta. Hún er fólk, traust og samband sem hefur byggst upp í gegnum 17 ár. Og ferðalagið heldur áfram.

Til hamingju með 17 árin, okkar dýrmæta Frú Ragnheiður og öll sem eruð og hafið verið með henni á ferðalaginu.