Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, undirrituðu samninginn í gær.
Í gær undirrituðu Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, samninginn, sem markar tímamót varðandi öryggi í vatni.
Rauði krossinn mun héðan í frá sjá alfarið um þjálfun, námskeið og hæfnispróf í Öryggi, skyndihjálp og björgun fyrir öll þau sem starfa í vatni.
Tímasetning samningsins er engin tilviljun, en haldið verður upp á 112-daginn á Sjóminjasafninu á sunnudag og þar verður þessi málaflokkur í forgrunni, því þema dagsins er Öryggi á vatni og sjó.
Um er að ræða fyrsta skiptið í sögu öryggismála í vatni á Íslandi þar sem Umhverfisstofnun hefur heimild samkvæmt lögum til að veita aðila eða stofnun umsjón og faglega ábyrgð í þessum mikilvæga málaflokki. Rauða krossinum var falið þetta verkefni eftir að Umhverfisstofnun mat félagið hæft til þess á grundvelli þekkingar og reynslu.



