Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Tímamótasamningur um 1717 „gefur okkur byr undir báða vængi“

Undirskrift1717 7Mai2026 Web

(F.v.) Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirrita samninginn í höfuðstöðvum Rauða krossins. Mynd: Davíð Þór

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag tveggja ára samning við Rauða krossinn á Íslandi um fjármögnun Hjálparsímans 1717. Samningurinn er til tveggja ára og felur í sér 50 milljóna króna framlag til reksturs þjónustunnar sem hefur reynst mörgum ómetanleg á erfiðum tímum á lífsleiðinni.

„Við fögnum þessum mikilvæga stuðningi sem gerir okkur kleift að mæta vaxandi þörf fyrir þjónustu Hjálparsímans af auknum krafti,“ segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sem ritaði undir samninginn fyrir hönd félagsins. Með samningi til tveggja ára skapist loks ákveðinn fyrirsjáanleiki sem skipti lykilmáli þegar komi að því að efla og bæta þjónustuna.

Undirskrift1717 7Mai2026 4

Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra við undirritunina.

„Samtölin eru að þyngjast og fleiri hafa samband vegna sjálfsvígshugsana,“ segir Ingibjörg. „Einnig lýsa fleiri ungmenni áreitni og hótunum sem þau verða fyrir á netinu. Til að bregðast við þessu ætlum við að stórauka fræðslu til starfsfólks og sjálfboðaliða. Þannig færum við þeim enn betri verkfæri til að veita öllum sem leita til Hjálparsímans nauðsynlegan stuðning.“

Ráðherrarnir þrír leggja áherslu á að Hjálparsíminn 1717 sé mikilvægur hluti af samfélagslegu öryggisneti. Með sameiginlegri aðkomu ráðuneytanna er undirstrikað að sálfélagslegur stuðningur snertir mörg svið samfélagsins: heilbrigði, velferð, húsnæðisöryggi, börn, ungmenni og fjölskyldur.

Undirskrift1717 7Mai2026 23

„Við stöndum þétt saman,“ söng Inga Sæland þegar aðkoma þriggja ráðuneyta að samningi um rekstur Hjálparsímans bar á góma. Hún og Alma heilbrigðisráðherra voru léttar í bragði við undirritunina.

„Við erum afar þakklát Rauða krossinum fyrir að sinna þessari mikilvægu starfsemi,“ sagði Alma Möller er hún mundaði pennann og skrifaði undir samninginn ásamt samráðherrum í höfuðstöðvum Rauða krossins í dag. „Ég veit af þessum aukna þunga í samtölunum. Það er áhyggjuefni. En á sama tíma er það ánægjuefni að fólk leiti sér hjálpar og að það treysti Hjálparsímanum fyrir erfiðleikum sínum og líðan.“

Stuðningur ráðuneytanna „gefur okkur byr undir báða vængi til að mæta vaxandi þörf eftir þjónustu Hjálparsímans,“ sagði Elfa Dögg S. Leifsdóttir, teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum. Á síðasta ári hafi rúmlega 20 þúsund samtöl borist. „Samtöl sem snúast um sjálfsvígshugsanir og ofbeldi hafa færst í aukana. Það sem af er þessu ári hafa þegar borist 533 samtöl frá fólki sem er í sjálfsvígshugleiðingum. Það gera um fjögur slík samtöl á sólarhring.“

Undirskrift1717 7Mai2026 20

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir við Elfu Dögg S. Leifsdóttur, teymisstjóra heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.

Um Hjálparsímann:

Hjálparsíminn 1717 er opinn allan sólarhringinn, bæði í síma og netspjalli. Þar veita sérþjálfaðir sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins virka hlustun, sálrænan stuðning og upplýsingar um úrræði sem standa fólki til boða.

Þjónusta Hjálparsímans nær til breiðs hóps fólks á öllum aldri. Þangað leita einstaklingar sem glíma við kvíða, vanlíðan, einmanaleika, áföll, ofbeldi eða sjálfsvígshugsanir. Stundum þarf aðeins einhvern sem hlustar. Stundum þarf að bregðast hratt við. Í öllum tilvikum skiptir máli að hjálpin sé til staðar þegar á henni þarf að halda.

Árið 2025 var 1.728 sinnum haft samband við 1717 vegna sjálfsvígshugsana sem er oftar en nokkru sinni áður. Í 229 tilvikum höfðu sjálfboðaliðar og starfsfólk 1717 samband við Neyðarlínuna og óskuðu eftir sjúkrabíl vegna alvarleika samtalanna.

Það sem af er árinu 2026 hafa tæplega 7.000 samtöl borist þjónustunni. Þar af hafa 533 samtöl snúið að sjálfsvígshugsunum og 546 að ofbeldi. Í 66 tilvikum hefur þurft að hafa samband við 112 vegna alvarleika máls.