Innanlandsstarf
Tímasetningar aðalfunda deilda 2026
20. febrúar 2026
Hér má sjá tímasetningar á þeim aðalfundum deilda Rauða krossins sem hafa verið ákveðnir. Fréttin verður uppfærð eftir því sem fleiri fundarboð berast.
Deild |
Dagsetning og tími |
Staðsetning |
| Akranesdeild | 9. mars kl. 17:00 | Húsnæði deildar |
| Árnessýsludeild | 5. mars kl. 20:00 | Húsnæði deildar |
| Barðastrandarsýsludeild | 25. mars kl. 18:00 | Félagsheimili Patreksfjarðar |
| Dala- og Reykhóladeild | 4. mars | |
| Djúpavogsdeild | 18. febrúar kl. 20:00 | Langabúð |
| Dýra- og Önundarfjarðardeild | 10. mars | |
|
Eyjafjarðardeild |
12. mars kl. 17:30 | Húsnæði deildar |
| Hornafjarðardeild | 25. febrúar kl. 17:00 | Golfskálinn, Dalbraut |
| Hveragerðisdeild | 12. mars | |
| Höfuðborgardeild | 12. mars, kl. 17:00 | Efstaleiti 9 |
| Rauði krossinn við Djúp | 21. febrúar | |
| Klausturdeild | 24. febrúar kl. 17:30 | Skaftársstofa |
| Múlasýsludeild | 24. febrúar kl. 20:00 | |
| Skagafjarðardeild | 15. mars kl. 11:00 | Húsnæði deildar |
| Strandasýsludeild | 3. mars 2026 | |
| Snæfellsbæjardeild | 12. mars | |
| Suðurnesjadeild | 11. mars kl. 18:00 | Húsnæði deildar |
| Þingeyjarsýsludeild | 3. mars | Naustið á Húsavík |
| Vestmannaeyjadeild | 5. mars | Arnardrangi |
| Vesturlandsdeild | 12. mars kl. 20:00 | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi |
| Víkurdeild | 23. febrúar kl. 19:00 | Húsnæði deildar, Suðurvíkurv. 3 |
Á dagskrá aðalfunda deilda skal hið minnsta fjallað um eftirtalin atriði:
a. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b. Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.
c. Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
d. Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram.
e. Kosning formanns deildar.
f. Kosning deildarstjórnar og varamanna skv. 20. gr.
g. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra.
h. Önnur mál.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.