Fara á efnissvæði

Endurmenntun: Öryggi og björgun - Vogar

Námskeið

22 okt.
Staðsetning Íþróttamiðstöðin í Vogum, Hafnargata 17, 190 Vogar
Tími 09:00 - 17:00
Leiðbeinandi Rúnar Helgason

Endurmenntun fyrir þau sem áður hafa lokið grunnnámskeiði í Öryggi og björgun fyrir laugarverði, sundkennara og sundþjálfara á sund- og baðstöðum.

Skráning
course-image
Endurmenntun fyrir þau sem áður hafa lokið grunnnámskeiði í Öryggi og björgun fyrir sundkennara og sundþjálfara á sund- og baðstöðum.

Lengd námskeiðs er 8 klukkustundir.
Þátttakendur er hvattir til að taka með sér orkuríkt nesti og vatnsbrúsa.

Markmið endurmenntunarnámskeiðsins er að veita þátttakendum, sem eru með gild skírteini í Öryggi og björgun, tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum Öryggi og björgunar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar.

Hæfnismat samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu, allir þátttakendur þurfa að standast það. Um hæfnismatið má lesa hér: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/oryggi-og-bjorgun/haefnismat/

Til þess að fá útgefið skírteini í Öryggi og björgun þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins:
- Umræðum og spurningum.
- Verklegum æfingum og tilfellaæfingum.
- Standast hæfnismatið .

ATH!! Þáttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur.

Tengiliður námskeiðs: Ásta María, s. 868-0550 / 440-6220.

Allar nánari upplýsingar á bjorgun@redcross.is.