Fara á efnissvæði

Nýliðanámskeið félagslegra verkefna (vinaverkefni)

Námskeið

15 jan.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 17:30 - 19:30
Leiðbeinandi Guðrún Svava Viðarsdóttir

Fimmtudaginn 15. janúar verður haldið námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í félagslegum verkefnum Rauða krossins - vinaverkefnum. Námskeiðið fer fram í Efstaleiti 9, 103 Reykjavík og fer það fram á íslensku. Tími: 17:30 - 19:30

Skráning
course-image
Hlutverk sjálfboðaliða er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og hlýju. Í námskeiðinu verður farið nánar yfir verkefnin og fræðst um ýmislegt þeim tengdum, s.s. félagslega einangrun og góð samskiptaform.

Nýliðanámskeiðið verður haldið í húsnæði Rauða krossins í Efstaleiti 9, 103 Reykjavík og mun standa yfir í um tvær klukkustundir.