• 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Um okkur
  • EN
  • Mínar síður
  • Styrkja
  • 1717
  • Aðstoð
    • Skaðaminnkun
    • Umsækjendur um alþjóðlega vernd
    • Flóttafólk og innflytjendur
    • Aðstoð eftir afplánun
    • Hjálparsíminn 1717 og netspjallið
    • Vinaverkefni
    • Sálræn fyrsta hjálp
    • Leitarþjónusta og fjölskyldusameiningar
  • Sjálfboðastörf
    • Sjálfboðaliðar
    • Félagar
  • Skyndihjálp
  • Um okkur
    • Um okkur
      • Grunngildi okkar
      • Stjórn og nefndir
      • Starfsfólk
      • Hafðu samband
      • Laus störf
    • Stefnur og lög
      • Stefna 2021-2030
      • Lög félagsins
      • Siðareglur
      • Mannúðarlög
      • Undirstefnur, regluverk og áætlanir
      • Persónuverndarstefna
    • Alþjóðastarf
    • Starfið á landsvísu
      • Starfið í nærsamfélaginu
      • Höfuðborgarsvæðið
      • Suðurnes
      • Vesturland
      • Vestfirðir
      • Norðurland vestra
      • Norðurland eystra
      • Austurland
      • Suðurland
    • Námskeið og viðburðir
      • Inngangur að neyðarvörnum 10. maí 2023 - fjarnámskeið
      • Psychosocial Support for Refugee Projects
      • Psychosocial Support for Refugee Projects
      • 12 klst skyndihjálp - staðnámskeið Efstaleiti
      • Bjargvættir - skyndihjálp fyrir ungmenni
      • 4-hour first aid course in English - Hafnarfjörður
      • Slys og veikindi barna - Staðnámskeið
      • Slys og veikindi ungbarna: yngri en 1 árs - Staðnámskeið
      • Grunnhundamat
      • Grunnhundamat
      • Hundavinanámskeið
      • 12 klst skyndihjálp - staðnámskeið Efstaleiti
      • Slys og veikindi ungbarna: yngri en 1 árs - Staðnámskeið
      • Slys og veikindi barna - Staðnámskeið
      • 4 klst skyndihjálp - staðnámskeið Efstaleiti
      • Nýliðanámskeið Vinaverkefna
      • Nýliðanámskeið Vinaverkefna
      • Nýliðanámskeið - Stuðningur við flóttafólk og innflytjendur
      • Geðheilbrigði flóttafólks og menningarnæmi - 2klst - Akureyri
      • Sálfélagslegur stuðningur í verkefnum með flóttafólki - 2,5klst - Akureyri
      • Sjálfsrækt í starfi með viðkvæmum hópum - 2,5klst - Akureyri
      • Sálfélagslegur stuðningur í starfi með flóttafólki - 2,5klst - Akureyri
      • Sálræn fyrsta hjálp - staðnámskeið Efstaleiti
      • Börn á flótta og áföll - 2klst - Akureyri
      • Bjargvættir - skyndihjálp fyrir ungmenni
    • Fréttir og útgefið efni
      • Fréttayfirlit
EN
Mínar síður Styrkja
  • Innanlandsverkefni
  • Umsækjendur um alþjóðlega vernd
  • Innanlandsverkefni
  • Alþjóðleg verkefni
  • Félagsstarf
  • Félagslegur stuðningur

Umsækjendur um alþjóðlega vernd

Rauði krossinn veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu í formi félagslegs stuðnings. Félagslegur stuðningur felst annars vegar í málsvarastarfi og réttindagæslu sem snýr að því að veita skjólstæðingum beina aðstoð við hagsmunamál sem þeir standa frammi fyrir í umsóknarferlinu, s.s. er varðar húsnæðismál, heilbrigðismál, uppihald og aðra sérsniðna þjónustu sem fólk á rétt á. Hins vegar felst félagslegur stuðningur í því að draga úr félagslegri einangrun, auka virkni fólks og ýta undir þátttöku þess í íslensku samfélagi á meðan það bíður eftir úrlausn umsóknar sinnar. 

Félagsstarf

Félagsstarf umsækjenda um alþjóðlega vernd býður skjólstæðingum og sjálfboðaliðum vettvang til að skipuleggja viðburði og verkefni með valdeflingu og virka þátttöku að leiðarljósi. Markmiðið með félagslegum stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd er að þjónusta skjólstæðinga og bjóða þeim upp á félagsleg úrræði, virkni og tengingu við nærsamfélagið, en ekki síður að vekja almenning til vitundar og hvetja til þátttöku.

Starfið er fjölbreytt og fjölmargir hópar hittast í viku hverri, þar með talið kvennahópur og ungmennahópur, en einnig er haldið opið hús. Auk þess er bæði íslenska og enska kennd. Félagsstarfið fer fram í Árskógum, á Vitatorgi og Smiðjuvöllum Reykjanesbæ. Dagskráin breytist reglulega en hana má finna í gegnum þennan hlekk:

Information for Asylum Seekers in Iceland on Facebook

Viltu styðja umsækjendur um alþjóðlega vernd?

Við leitum að sjálfboðaliðum 20 ára og eldri sem tala íslensku eða ensku og vilja taka þátt í félagsstarfi með umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Umsókn um sjálfboðastarf

Félagslegur stuðningur

Rauði krossinn býður upp á viðtalstíma fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd vikulega. Tilgangur tímanna er að skapa vettvang fyrir umræður um mál sem liggja umsækjendum á hjarta, hvort sem þau snúa að félagslegum þáttum, s.s. aðbúnaði og líðan, málsmeðferð eða tengslum við fjölskyldu í upprunaríki. Í viðtalstímum er boðið upp á túlkaþjónustu í gegnum síma svo allir geta tjáð sig óhindrað. Þjónustan er veitt á forsendum umsækjenda og hefur verið sem næst búsetuúrræðum fólks með auðvelt aðgengi að leiðarljósi. Fjórir starfsmenn sinna félagslegu hjálparstarfi, stuðningi og vernd umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Viðtalstímar

Viðtalstímar fara fram á eftirfarandi tímum:

Reykjavík
Miðvikudagar kl 12-15
Árskógar 4
Strætisvagnastöð: Mjódd

Keflavík
Fimmtudaga kl 12-15
Smiðjuvellir 8
Strætisvagnastöð: Fjölbrautarskóli

Sími: 570 4000
Netfang: asylum@redcross.is

Bakhjarlar Rauða krossins
Coka Cola Eimskip Íslands spil Sorpa Marel Stjórnarráðið
  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Um okkur
Styrkja
  • Rauði krossinn á Íslandi Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
  • Sími 570 4000
  • Hjálparsíminn 1717
  • Netfang info@redcross.is
  • Kennitala 530269-2649
  • Bankanúmer 0342-26-555
equal-pay-logo