Frú Ragnheiður: Skaðaminnkun
Frú Ragnheiður vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar þar sem lögð er áhersla á að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa. Frú Ragnheiður hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð með því að veita lágþröskuldaþjónustu í nærumhverfi einstaklinga. Lækkun á tíðni sýkinga og útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við HIV og lifrarbólgu C, færri dauðsföll af völdum ofskömmtunar, ábyrgari neysluhegðun og minna af notuðum sprautubúnaði í almenningsrýmum eru á meðal þess ávinnings sem hlýst af verkefninu án mikils tilkostnaðar.
Algengar spurningar og svör
Bíllinn ekur á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Akureyri.
Höfuðborgarsvæðið: Sunnudaga til föstudaga (öll kvöld nema laugardaga) klukkan 18:00-21:00. Til að hitta bílinn er hægt að hringja í síma 788-7123 eða senda skilaboð á Facebooksíðu Frú Ragnheiðar.
Á dagtíma sinna starfskonur á höfuðborgarsvæðinu eftirfylgd með málum skjólstæðinga. Þær aðstoða skjólstæðinga við að koma málum sínum í réttan farveg og veita aðstoð við að komast í sértækari heilbrigðisþjónustu, í vímuefnameðferðir og í félagslega þjónustu.
Á Suðurnesjum er hún á ferðinni á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 20-22. Síminn er 783-4747. Frú Ragnheiður á Suðurnesjum á Facebook.
Á Akureyri er ekið á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 20-22. Síminn er 800-1150. Ungfrú Ragnheiður á Facebook.
Nálaskiptaþjónusta, boðið er upp á búnað og hreinlætisvörur fyrir notkun vímuefna um æð og tekið á móti notuðum búnaði.
Heilbrigðisþjónusta, m.a. aðhlynning sára, sýklalyfjameðferð, umbúðaskipti, saumataka og almenn heilsufarsskoðun og ráðgjöf. Á hverri vakt starfar hjúkrunarfræðingur og læknir sem sinnir bakvakt.
Sálrænn stuðningur og ráðgjöf, t.d. aðstoð við að komast í sértækari heilbrigðisþjónustu, í vímuefnameðferðir og í félagslega þjónustu.
Í Frú Ragnheiði er hægt að nálgast hlý föt, næringu, svefnpoka, tjalddýnur
Öll geta leitað til Frú Ragnheiðar. Verkefnið hefur þann tilgang að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu eins og húsnæðislausra einstaklinga og einstaklinga sem nota vímuefni um æð og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu í formi heilbrigðisþjónustu og nálaskiptiþjónustu.
Frú Ragnheiður lofar 100% trúnaði og nafnleynd. Við leggjum mikla áherslu á að koma fram við fólk af virðingu, skilningi og væntumþykju.
Í Frú Ragnheiði á höfuðborgarsvæðinu starfa rúmlega 100 sjálfboðaliðar. Verkefnið byggir á sjálfboðnu starfi fjölbreytts hóps einstaklinga sem standa að meðaltali tvær vaktir í mánuði og skuldbinda sig í að lágmarki eitt ár. Stærsti einstaki faghópurinn eru hjúkrunarfræðingar, jafnframt eru læknar, félagsráðgjafar, lyfjafræðingar, sálfræðingar og aðrir reynslumiklir einstaklingar hluti af verkefninu. Allir sjálfboðaliðar sækja námskeið og fara í gegnum þjálfum til að geta veitt þjónustu í Frú Ragnheiðar bílnum. Aldurviðmið er 24 ár.
Tölfræði Frú Ragnheiðar fyrir árið 2023
Frú Ragnheiðar bíllinn er sérinnréttaður til að veita þjónustu á vettvangi. Tekið er á móti notuðum sprautubúnaði til förgunar í samstarfi við Landspítalann, sem er hluti af samfélagslegri skaðaminnkun til að draga úr notuðum sprautubúnaði sem verður eftir á götum borgarinnar eða í ruslinu.
Viltu verða sjálfboðaliði í verkefninu?
Við leitum að sjálfboðaliðum 24 ára og eldri sem hafa heilbrigðismenntun og/eða brennandi áhuga á skaðaminnkun. Í dag er biðlisti fyrir sjálfboðaliða.
Ylja neyslurými
Neyslurýmið Ylja er skaðaminnkandi úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geta komið og notað efnin í öruggu rými undir leiðsögn frá heilbrigðismenntuðum aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun og sýkingum. Neyslurýmið var til að byrja með færanlegt og var starfrækt í bíl frá því í mars 2022 til mars 2023. Í byrjun ágúst 2024 opnaði það svo að nýju og að þessu sinni í húsnæði, en færanlegt neyslurými í bíl hentaði úrræðinu ekki nægilega vel og því var ákveðið að finna viðeigandi húsnæði í staðinn.
Ylja er fyrsta neyslurýmið til að opna á Íslandi. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta notað ávana- og fíkniefni undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Neyslurými eru starfrækt víða um heim og hafa mikinn samfélagslegan ávinning í för með sér.
Ylja vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar sem felur í sér að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa. Með því að veita öruggan og hreinan stað til að neyta vímuefna er hægt að tryggja bætt öryggi til notenda sem og samfélagsins.
Markmið Ylju eru því að lágmarka þörf einstaklinga til að neyta vímuefna á almannafæri og þannig koma í veg fyrir þann skaða sem vímuefnaneysla í óöruggum aðstæðum getur haft í för með sér. Má þar nefna sýkingar, blóðborna smitsjúkdóma og ofskammtanir. Ylja leggur einnig áherslu á að mynda traust, veita stuðning og viðhalda mannlegri reisn hjá notendum úrræðisins.
Ylja er opin alla virka daga milli 10-16 og á föstudögum milli 10-14.
Algengar spurningar og svör
Neyslurýmið Ylja er staðsett í gámahúsi við Borgartún 5 og þar er opið alla virka daga milli 10-16 og á föstudögum milli 10-14.
Ráðgjöf
Starfsfólk Ylju veitir skaðaminnkandi ráðgjöf varðandi vímuefnanotkun eftir bestu getu ásamt því að grípa inn í lífsógnandi aðstæður.
Búnaður
Ylja býður upp á hreinan búnað fyrir notkun vímuefna í æð og tekur á móti notuðum búnaði. Ylja er þó ekki með búnað í sama magni og Frú Ragnheiður og hvetjum við því notendur að nýta sér þjónustu þeirra á kvöldin.
Heilbrigðisþjónusta
Í Ylju er alltaf heilbrigðisstarfsmaður á vakt sem getur veitt lágmarks heilbrigðisþjónustu og ráðgjöf, ásamt því að benda notendum áfram á frekari þjónustu og grípa inn í lífsógnandi aðstæður.
Sálrænn stuðningur og ráðgjöf
Starfsfólk Ylju sinnir sálrænum stuðningi ásamt því að benda notendum á frekari þjónustu ef við á.
Öll sem vilja ráðgjöf og öruggt skjól til að neyta vímuefna og eru 18 ára eða eldri geta leitað til Ylju.
Ylja lofar 100% trúnaði og nafnleynd. Við leggjum mikla áherslu á að koma fram við fólk af virðingu, skilningi og væntumþykju.