Fara á efnissvæði
Kvennadeild Reykjarvíkurdeildar

Kvennadeild

Kvennadeild Reykjavíkurdeildar RKÍ var stofnuð1966 og hefur komið að ýmsum verkefnum, m.a. bókaþjónustu

Kvennadeild01

Kvennadeild Reykjavíkurdeildar RKÍ var stofnuð1966 og hefur komið að ýmsum verkefnum, m.a. bókaþjónustu.

Í dag rekur deildin sjálfsala og sölubúðir á Landspítalanum í Fossvogi og á Hringbrautinni. Sjálfboðaliðar sjá um afgreiðslustörf í þrjá tíma á dag. Auk þess er starfandi prjónahópur, sem hittist vikulega yfir vetrartímann.

Sjálfboðaliðar í sölubúðum eru á þriggja tíma vöktum, 10:00 - 13:00 eða 13:00 - 16:00. Sumir eru á föstum vöktum, aðrir ekki. Gefandi starf, þar sem viðskiptavinir eru starfsmenn spítalans, sjúklingar og aðstandendur.

Prjónahópurinn hittist á fimmtudögum kl. 13:00 - 15:00 yfir vetrartímann í húsnæði Rauða krossins. Hannyrðirnar eru seldar í sölubúðunum og á Jólabasar deildarinnar.