Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra
Námskeiðið Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra er ætlað einstaklingum sem starfa sem atvinnubílstjórar og er partur af þriðja hluta í endurmenntun atvinnubílstjóra: Öryggi.
Námskeiðið er byggt á kennsluefni frá Rauða krossinum og er samkvæmt námskrá Samgöngustofu.
Þátttakendur munu fá tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum til í að:
- Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum.
- Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.
Þátttakendur sem standast endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir atvinnubílstjóra fá útgefið eftirfarandi skírteini: Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra og er það gilt í tvö ár frá útgáfudegi.
Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.
Frekari upplýsingar
Staðarnámskeið Rauða krossins: 15.400 kr.
Vinnustaðarnámskeið - sjá verðskrá (hlekkur)
Athugið að stéttarfélög bjóða félagsfólki upp á starfsmenntunarstyrki og fyrirtæki sem greiða iðgjald í starfsmenntunarsjóði/setur geta sótt um fræðslustyrki fyrir starfsfólk sitt.
15 þátttakendur.
Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í hámarksfjölda þátttakenda á leiðbeinanda.
Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.
6 klukkustundir og 15 mínútur
Samkvæmt námskrá skal námskeiðið vera 7 kennslustundir auk þess sem tekin eru hlé.
Hver kennslustund er 45 mínútur.
- Rauði krossinn og útbreiðsla skyndihjálpar
- Forvarnir og undirbúningur
- Öryggi og aðstæður
- Vettvangsstjórn og samstarf við viðbragðsaðila
- Skoðun og mat
- Virkja viðbragðskeðjuna
- Kynning á sálrænni fyrstu hjálp
- Aðskotahlutur í hálsi
- Endurlífgun
- Bráð veikindi
- Slys og áverkar
Til þess að fá útgefið skírteini í Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins.
Kennsluaðferðir námskeiðs eru fyrirlestrar, umræður og spurningar og sérstök áhersla er á sýnikennsla, verklegar æfingar og tilfellaæfingar.
Við lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu, hæfni og öryggi í skyndihjálp, en það felst í því að þátttakendur:
- Sýni fram á þekkingu og hæfni í forvörnum og undirbúningi sem hluta af umferðaröryggi.
- Sýni fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi á vettvangi, meta aðstæður og framkvæma skoðun og mat.
- Sýni fram á leikni við vettvangstjórnun slysa og í samstarfi við viðbragðsaðila á vettvangi.
- Geta ákveðið hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð.
- Geti borið kennsl á og veitt sálræna fyrstu hjálp vegna áfalla.
- Sýni fram á þekkingu, leikni og hæfni í endurlífgun, með hjartahnoði, öndunarblástrum og notkun á hjartastuðtæki.
- Sýni fram á leikni og hæfni í teymisvinnu í endurlífgun.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna slysa og áverka.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna bráðra veikinda.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna aðskotahlutar í hálsi.