Þessi síða er í vinnslu
Öryggi og björgun
Fyrr á árinu gerði Rauði krossinn samning við Umhverfisstofnun til tveggja ára. Með þessu verkefni er Rauði krossinn að sína forystu í öryggi almennings við vatn og/eða í vatni.
Á Íslandi eru u.þ.b. 130 sundlaugar, þar að auki eru nátturulaugar og aðrir minni baðstaðir.
Á námskeiðinu er kennd almenn skyndihjálp, björgun úr laug og tekið hæfnispróf. Námsefnið er sett upp með hliðsjón af reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010 með síðari breytingum, sem er gerð góð skil í Handbókinni fyrir sund og baðstaði.
Allir almennir starfsmenn sundstaða þurfa að ljúka skyndihjálparnámskeiðum árlega.
Flestir sund og baðstaðir þurfa að vera með laugavörð á hverri vakt. Til að fá laugavarðaréttindi þarf fólk að ljúka 20 klst námskeiði í Öryggi og björgun auk þess að standast hæfnispróf. Árlega þurfa laugarverðir að sækja 8 klst endurmenntun. Sjá má fyrirkomulag námskeiða hér.
Öryggi og björgun er námskeið fyrir nýja og vana sundlaugarverði, starfsfólk sundlauga, sundkennara, sundþjálfara og aðra sem koma að öryggi almennings á sund og baðstöðum.