Námskeið fyrir sund og baðstaði
Rauði krossinn mun veita sund- og baðstöðum sérfræðiþekkingu á efninu og vera þeirra helstI stuðningsaðili þegar kemur að reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010 með síðari breytingum. Við höfum einnig stofnað lokaða upplýsingarsíðu sem forstöðumenn og aðrir stjórnendur sund og baðstaða geta sótt um aðgang að.
Einnig munum við bjóða uppá miðlægan skráningargrunn þar sem hægt verður að nálgast fyrirtækjasögu, einstaklingssögu og skírteini, þá munu við einnig senda áminningarpósta þegar komið er að endurnýjun skírteina.
Þið finnið dag og tíma sem hentar ykkur og við komum á staðinn. Hjá ykkur þarf að vera mögulegt að tengja tölvu við skjá/skjávarpa með mynd og hljóði.
Námskeiðin geta verið haldin á íslensku og ensku.
Hluti námskeiðsins fer fram í sundlaug því þarf að vera aðgengi að laug, Rauði krossinn getur útvegað laug gegn vægu gjaldi.
Gott er að panta námskeið með góðum fyrirvara.
Við miðum við að ekki séu fleiri en 15 manns á bóklegum hluta námskeiðs og 12 manns í verklegum hluta.
Fyrir frekari fyrirspurnir, hafið samband á bjorgun@redcross.is.