Fara á efnissvæði
Innanlandsstarf

Að tengjast er að tilheyra: Morgunmálþing um einmanaleika

Vinaverkefni

Er einmanaleiki faraldur á Íslandi? Er tilefni til að stofna ráðuneyti einmanaleikans? Fólk úr hvaða hópum samfélagsins er útsettast fyrir að vera einmana og hvað er hægt að gera til að draga úr einsemd? Upplifum við öll einmanaleika með sama hætti, við sömu aðstæður eða hefur hann fleiri en eina vídd?

Í tilefni af Viku einmanaleikans býður Rauði krossinn til morgunmálþings í höfuðstöðvum sínum í Efstaleiti 9, föstudaginn 3. október. Húsið verður opnað kl. 8.30, dagskrá hefst klukkan 9 og stendur í um klukkustund. „Á málþinginu munu fræðimenn draga fram það helsta sem rannsóknir á einmanaleika sýna og við hjá Rauða krossinum segjum frá verkefnum okkar sem miða að því að draga úr einmanaleika,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri Höfuðborgardeildar Rauða krossins. „Svo ætlum við að ræða hvað við getum öll gert til að stuðla að aukinni samkennd og samfélagslegri þátttöku.“

Öll sem hafa áhuga eru hjartanlega velkomin á málþingið. Léttar veitingar verða í boði.

Á dagskrá:

Einmanaleiki er lýðheilsumál. Sigrún Daníelsdóttir, teymisstjóri geðræktar á lýðheilsusviði Embættis landlæknis.

Vaxandi upplifun ungmenna af einmanaleika. Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, kynnir niðurstöður grunn- og framhaldsskólakönnunar.

Einmanaleiki – meira en félagsleg samskipti. Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, fjallar um einmanaleika og þær ólíku birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.

Saman gegn einmanaleika. Alda Björk Harðardóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, fjallar um hvernig heimsóknarvinir, gönguvinir, hundavinir og símavinir geta bætt líðan fólks og orðið mikilvæg grunnstoð í viðbrögðum samfélagsins við þeim lýðheilsuvanda sem einmanaleiki er.

Stuðningur þegar mest á reynir. Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsímans 1717, fjallar um Hjálparsímann sem öryggisnet sem grípur fólk þegar erfiðleikar steðja að og veitir stuðning þegar mest á reynir.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna á hverjum degi að því að rjúfa félagslega einangrun og skapa tengsl sem skipta máli.

Sækja um sjálfboðastarf

Daglega hefur fólk sem er einmana samband við Hjálparsímann 1717. „Við finnum að einmanaleiki er vaxandi vandamál,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri geðheilbrigðis hjá Rauða krossinum. Þeim sem hafa samband við 1717 vegna einmanaleika er meðal annars bent á vinaverkefni Rauða krossins. Þau miða að því að styrkja og efla félagslega þátttöku fólks. Sjálfboðaliðar ýmist heimsækja einstaklinga eða hópa, t.d. á öldrunarheimilum, og veita félagsskap, nærveru og hlýju.

Í öðrum verkefnum á vegum Rauða krossins er einnig unnið að því að rjúfa félagslega einangrun, m.a. í þeim er snúa að stuðningi við flóttafólk. „Við sköpum rými og stað til þess að tengjast og tengjast líka samfélaginu,“ segir Elfa og vísar til yfirskriftar málþingsins, Að tengjast er að tilheyra. Hún minnir á að Rauði krossinn leiti nú að fleiri sjálfboðaliðum, m.a. til að taka þátt í vinaverkefnunum. „Það hefur sýnt sig að það að gefa vinnu sína hjálpar líka sjálfboðaliðanum. Það er fátt sem trompar það að bæta líf annarrar manneskju með samveru og nærveru.“

Elfa var í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 um málþingið sem hlusta má á hér.

Viðburðurinn á Facebook