Staðsetning
Smiðjuvellir 9, 230 Reykjanesbær
Tími
16:00 - 20:00
Leiðbeinandi
Aron Rúnarsson
Námskeiðið er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 12-16 ára (miðað er við fæðingarár) sem vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum.
Bjargvættir - Viðnámsþróttur er ókeypis námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12–16 ára á Suðurnesjum.
Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnatriði skyndihjálpar, hvernig bregðast má við óvæntum aðstæðum og fá þjálfun sem styrkir sjálfstraust og viðnámsþrótt til framtíðar.
Námskeiðið er 4 klst með hléi.
Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.
Við hvetjum þátttakendur til að taka með sér nesti.
Í lok námskeiðsins bjóðum við þátttakendum að svara nokkrum spurningum um upplifun þeirra af námskeiðinu. Spurningalistinn er nafnlaus og svör ekki rakin til einstaklinga.
Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skrifstofa.sudurnes@redcross.is