Sálræn fyrsta hjálp
Áfall lætur engan ósnortinn.
Þú hefur orðið fyrir erfiðri reynslu sem getur haft áhrif á líkama og sál.
Mikilvægt er að muna að áhrifin eru einstaklingsbundin og geta varað mislengi en viðbrögðin fara eftir lífsreynslu okkar og þeim stuðningi sem við fáum. Við gætum þess að bera virðingu fyrir viðbrögðum allra.
Dæmi um algeng áhrif eru ásæknar hugsanir og spurningar, reiði, ótti, depurð, doði og þreyta.
Mikilvægt er að ræða reynslu sína við góðan vin. Einnig má hringja í Hjálparsíma Rauða krossins – 1717 en það er gjaldfrjálst númer sem er opið allan sólarhringinn fyrir öll sem þurfa að tala í trúnaði og einlægni við hlutlausan aðila. Hjá 1717 er hægt að óska eftir viðtali hjá viðbragðshópi Rauða krossins í sálrænni fyrstu hjálp í kjölfar áfalls.
Sálræn fyrsta hjálp (SFH) er aðferð til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sálræn fyrsta hjálp er tilfinningalegur og hagnýtur stuðningur þar sem nærgætni og virkri hlustun er beitt. SFH er hvorki ráðgjöf né meðferð. Sálræn fyrsta hjálp getur gagnast þeim sem eru í uppnámi til að takast á við eðlilegar tilfinningar í aðstæðunum, stuðlað að heilbrigðum bjargráðum auk þess að stuðla að öryggi og von.
Hverjir geta óskað eftir samtali hjá viðbragðshóp um sálrænan stuðning?
- Viðbragðshópar Rauða krossins veita viðtöl vegna alvarlegra slysa (minni hópar, einstaklingar) svo sem drukknunar, bílslyss, flugatviks, ráns, heimaslyss eða alvarlegra atvika á vinnustað. Í kjölfar samgönguslyss – flugatviks og rútuslyss.
- Einnig eru veitt viðtöl vegna náttúruhamfara s.s eldgoss, jarðskjálfta, ofanflóða
- Viðbragðshópar styðja foreldra/forráðamenn við að styðja börnin sín.
Sálrænn stuðningur - bæklingar
Hér fyrir neðan eru bæklingar um sálrænan stuðning bæði fyrir fullorðna og börn.
Bæklingar fyrir fullorðna
Bæklingar - Stuðningur við börn
Sorgarmiðstöð
Sorgarmiðstöð leitast við að styðja við syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra.
Viðbrögð við skyndilegu andláti á vinnustað
Á heilsueflandi vinnustöðum er lögð áhersla á að efla vellíðan, auka öryggi og aðstoða starfsfólk við að takast á við erfið persónuleg viðfangsefni, svo sem dauðsföll og/eða önnur áföll. við skyndilegu andláti á vinnustað.
Viðbragðsáætlun fyrir íþróttafélög
Markmið þessarar viðbragðsáætlunar er að færa aðilum innan íþrótta- og æskulýðsfélaga, sem og öðrum sem að málinu kunna að koma, verkfæri til að bregðast við slíkum aðstæðum sem best.
Stuðningur í kjölfar sjálfsvígs
Bæklingar um stuðning í kjölfar sjálfsvígs.
Píeta
Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur.