Fara á efnissvæði

Nýliðanámskeið félagslegra verkefna (vinaverkefni)

Námskeið

20 apr.
Staðsetning Dynskógar 4, 700 Egilsstaðir
Tími 18:00 - 19:30
Leiðbeinandi Sóley Björk Stefánsdóttir

Mánudaginn 20. apríl verður haldið námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í félagslegum verkefnum Rauða krossins - vinaverkefnum. Námskeiðið fer fram í húsnæði Rauða krossins í Múlasýslu að Dynskógum 4 og fer það fram á íslensku. Tími: 18:00- 19:30

Skráning
course-image
Hlutverk sjálfboðaliða er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og hlýju. Í námskeiðinu verður farið nánar yfir verkefnin og fræðst um ýmislegt þeim tengdum, s.s. félagslega einangrun og góð samskiptaform.

Nýliðanámskeiðið verður haldið í húsnæði Rauða krossins í Múlasýslu og tekur um 90 mínútur.