Fara á efnissvæði

Sálrænn stuðningur (PFA)

Námskeið

21 apr.
Staðsetning Dynskógar 4, 700 Egilsstaðir
Tími 16:30 - 19:30
Leiðbeinandi Sóley Björk Stefánsdóttir
Verð á mann 0 ISK

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir sálrænnar fyrstu hjálpar til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sú færni getur hjálpað þér að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.

Skráning
course-image

Á námskeiðinu eru þátttakendur kynntir fyrir undirstöðuatriðum í sálrænni fyrstu hjálp. Það hentar öllu starfsfólki og sjálfboðliðum sem sinna sálfélagslegum stuðningi sem og öðrum sem veita fólki stuðning.

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist: þekkingu um sálræna fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki, frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan, skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“, færni í að veita sálræna fyrstu hjálp, skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum og mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra.

Námskeiðið fer fram í húsnæði Rauða krossins í Múlasýslu að Dynskógum 4, Egilsstöðum. Boðið verður upp á léttar veitingar.