Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími
18:00 - 21:00
Þetta námskeið er undirbúningur fyrir sjálfboðaliða í verkefnum með flóttafólki og er góð þjálfun í því að veita flóttafólki sálfélagslegan stuðning í gegnum verkefnin. Námskeiðið er kennt á íslensku.
Á þessu námskeiði fá þátttakendur kynningu á Sálfélagslegum stuðningi í starfi með flóttafólki. Námskeiðið er fyrir sjálfboðaliða í flóttamannaverkefnum. Sálfélagslegur stuðningur er stuðningur fyrir fólk þar sem reynt er að mæta þeirra félags og sálrænum þörfum - t.d. þörf fyrir virka hlustun, þörf fyrir félagslegar tengingar og þörf fyrir að tjá tilfinningar sínar. Á námskeiðinu fá sjálfboðaliðar tól til að styrkja hæfni sína og þekkingu til að veita betri stuðning til flóttafólks sem þeir vinna með í verkefni. Sálfélagslegur stuðingur er einnig hjálplegur í daglegu lífi með fjölskyldu og vinum.
Námskeiðið verður haldið mánudaginn 11. maí kl. 18-21 að Efstaleiti 9, 103 Reykjavík