• 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
  • EN
  • Mínar síður
  • 0
  • Styrkja
  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
    • Sjálfboðaliðar
    • Félagar
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
    • Um okkur
      • Grunngildi okkar
      • Stjórn og nefndir
      • Starfsfólk
      • Hafðu samband
      • Laus störf
    • Stefnur og lög
      • Stefna 2021-2030
      • Lög félagsins
      • Siðareglur
      • Mannúðarlög
      • Undirstefnur, regluverk og áætlanir
      • Persónuverndarstefna
    • Alþjóðastarf
    • Innanlandsstarf
    • Starfið á landsvísu
      • Starfið í nærsamfélaginu
      • Höfuðborgarsvæðið
      • Suðurnes
      • Vesturland
      • Vestfirðir
      • Norðurland vestra
      • Norðurland eystra
      • Austurland
      • Suðurland
    • Námskeið og viðburðir
    • Fréttir og útgefið efni
  • Verkefni
    • Innanlandsverkefni
      • Flóttafólk og innflytjendur
      • Fataverkefni og endurnýting
      • Heilbrigði og velferð
      • Hamfarir og neyðaraðstoð
    • Alþjóðleg verkefni
      • Alþjóðastarfið okkar
  • Vefverslun
EN 0
Mínar síður Styrkja
  • Innanlandsverkefni
  • Öryggi og björgun
  • Öryggi í vatni - fræðsla
  • Drukknunarforvarnir og staðreyndir
  • Fréttatilkynningar
  • Efni fyrir sund- og baðstaði

Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Átakið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi (SFSÍ) og er því beint að öllu landinu. 

Börn á aldrinum 1-4 ára eru líklegust til að lenda í vandræðum í sundi eða drukkna. Þar á eftir koma börn á aldrinum 5-9 ára. Ástæðurnar eru nokkrar eins og börn eru ósynd eða með takmarkaða sundfærni og það getur tekið aðeins 30 sekúndur fyrir barn að drukkna og gerist það hljóðlega.

Sumarið er sá árstími sem flestir njóta þess að fara í sund og baða sig í vatni. Svo allir geti notið þeirra stunda sem best, ætti ávallt að hafa öryggismál í hávegum og að foreldrar og forráðafólk taki eftirlitsskylduna sína alvarlega og missi aldrei sjónar á barni í sundi.

Fimm ráð
um öryggi barna í sundi

Hafðu augun ekki af barninu allan tímann

Foreldri eða forráðamaður ber ábyrgð á barni í vatni. Það þýðir að hann skal fylgjast stöðugt með því og sjá til þess að það noti viðeigandi öryggisbúnað (kúta) og að hann sé settur á barnið áður en farið er ofan í vatnið.  

Gefðu barninu að borða og drekka

Passaðu að barnið sé vel nært og hafi fengið að drekka áður en það fer í vatnið. Að leika sér í vatni er orkufrek iðja. Þyrst barn getur misst orkuna hratt og þar með eykst hætta á drukknun.

Viðhaltu sundfærni barnsins yfir sumartímann

Þegar skólasundinu sleppir á vorin er komið að forráðamönnum að halda færninni við.

Tryggjum að allir í fjölskyldunni sem eru synd hafi hæfnina til að bjarga sér úr vandræðum í vatni. 

Settu öryggisreglur í kringum vatn og fræddu barnið um öryggi í vatni

Settu einfaldar og skýrar reglur um öryggi í vatni og útskýrðu fyrir barninu. Til dæmis "aldrei fara í vatn án eftirlits."  

Lærðu endurlífgun og skyndihjálp

Vertu viðbúin að bregðast við neyðartilfellum í og kringum vatn. Rauði krossinn býður upp á skyndihjálparnámskeið. Skráðu þig hér. 

Laugarverðir eru hluti af öryggismenningu
sund- og baðstaða

Rauði krossinn, í samstarfi við sundlaugar í landinu, hefur síðan í ársbyrjun 2023 kennt öryggi og björgun í vatni, námskeið sem eru sérstaklega ætlað starfsfólki sund- og baðstaða. Rauði krossinn ber einnig ábyrgð á hæfnismati laugavarða sem þeir þurfa að standast árlega, samkvæmt reglugerð, til að halda réttindum sínum.  

Laugarverðir sundlauga sinna eftirliti og eru viðbragðsaðilar, sem þýðir að þeir bregðast við um leið og eitthvað gerist. Frumskylda laugarvarða í starfi er að tryggja öryggi gesta á vaktinni sinni. Laugarverðir sinna þessari frumskyldu sinni með eftirliti og skönnun á sínu svæði, tryggja slysavarnir, hafa þekkingu á lögum, reglugerðum og öryggisreglum. Þeir þurfa líka að vera tilbúnir til að bregðast við neyðartilfellum, taka stjórn á aðstæðum og veita skyndihjálp. 

Almenningur er líka hluti af öryggimenningunni á sund – og baðstöðum. Þegar við förum í sund gerum við það alltaf á eigin ábyrgð, sem framlengist ef við erum með börn með okkur. Ábyrgð okkar snýst um að við treystum okkur til að vera í vatni, að dagsformið okkar sé gott, vera vel nærð, vera meðvituð um að vatn, hiti og kuldi geti haft áhrif á undirliggjandi sjúkdóma eða kvilla. Einnig þýðir það að við treystum okkur til að bera ábyrgð á börnum í sundi og að tryggja að þau séu með nauðsynlegan öryggisbúnað eins og kúta. 

Með öflugu samstarfi okkar allra í öryggismenningu á sund – og baðstöðum getum við komið í veg fyrir alvarleg atvik eins og drukknun í laugum. 

  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
Styrkja
  • Rauði krossinn á Íslandi Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
  • Sími 570 4000
  • Hjálparsíminn 1717
  • Netfang info@redcross.is
  • Kennitala 530269-2649
  • Bankanúmer 0342-26-555
  • Ábendingalína Ertu með ábendingu?
equal-pay-logo