
Hvar sem er vatn er hætta á drukknun
Drukknun getur átt sér stað nánast hvar sem vatn er að finna: Í náttúrulaugum, heitum pottum, stöðuvötnum, ám og lækjum, fjörum, við bryggjur, í baðkörum og jafnvel pollum. Þær verða líka í sundlaugum, þótt komið sé í veg fyrir margar þar sem gott eftirlit er viðhaft. „Allir geta drukknað. Enginn ætti að þurfa þess,“

Drukknun er algengari en þú heldur
68 einstaklingar drukknuðu á Íslandi á árunum 2013-2023. Þeir sem drukkna á hafi úti eru ekki inn í þessum tölum. Flestar drukknanir voru á stöðum þar sem engir aðilar sinna eftirliti.
Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. WHO hefur gefið það út að drukknun sé hinn þögli faraldur og það þurfi að bregðast við með forvörnum og fræðslu.

Drukknun er þögul og hröð
Tíminn sem það tekur einstakling að drukkna eru bara nokkrar mínútur og börn geta drukknað á 30 sekúndum. Það er tíminn sem tekur okkur að svara skilaboðum í símanum eða bera á okkur sólarvörn. Drukknun getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega án hrópa og busls í vatninu

Öryggi barna í vatni
Ábyrgð fullorðna er rík þegar kemur að öryggi barna í og við vatni en börn á aldrinum 1-4 ára eru líklegust til að lenda í vandræðum í vatni eða drukkna. Þar á eftir koma börn á aldrinum 5-9 ára. Börn á þessum aldri eru forvitin og sífellt á ferðinni og foreldrum hættir til að ofmeta getu sína til að fylgjast með þeim og sömuleiðis ofmeta sundgetu barna sinna.

Nærdrukknanir
Drukknun leiðir ekki alltaf til dauða. Drukknun getur valdið því að einstaklingur fer í öndunar - og hjartastopp en er bjargað með endurlífgun og er því nærdrukknun. Nærdrukknunin getur valdið súrefnisskorti til heila og valdið varanlegum skaða sem hafur áhrif á líf og lífsgæði einstaklingsins.

Það er hægt að koma í veg fyrir drukknun
Saman getum við komið í veg fyrir drukknanir með forvörnum og fræðslu. Með því að vera meðvituð um hætturnar, nota viðeigandi öryggibúnað og hafa stanslaust eftirlit með börnum í og kringum vatn stuðlum við að öryggi barna í vatni og komum í veg fyrir drukknun.
Sundfærni okkar er líka mikilvægasta drukknunarforvörnin sem við höfum. Með henni höfum við færnina til að bjarga okkur ef við lendum í vandræðum í vatni.
Verum líka sammála um samfélagslega skyldu okkar allra: „Ef við sjáum eitthvað í sundi sem gæti verið hættulegt skulum við bregðast við. Látum okkur velferð allra barna varða. Það er betra að segja eitthvað og gera eitthvað en að sitja þögul hjá.“

Verum viðbúin að bregðast við neyðartilfellum í og kringum vatn
Þekkjum merki þess að einhver er í erfiðleikum eða er að drukkna.
Þekkjum leiðirnar til að koma til einstaklingi sem er í erfiðleikum eða er að drukkna til aðstoðar.
Verum þjálfuð í skyndihjálp og endurlífgun en það getur bjargað lífi.
Merki þess að einstaklingur er í erfiðleikum eða er að drukkna
Nær ekki að koma sér áfram í vatninu
Er lóðréttur í vatninu en getur ekki hreyft sig úr stað eða troðið marvaða
Er hreyfingarlaus og andlitið er undir yfirborði vatnsins
Leiðirnar til að koma einstaklingi sem er í erfiðleikum eða er að drukkna til aðstoðar
Mikilvægast er að tryggja þitt eigið öryggi þegar þú ætlar að koma til aðstoðar
Ef þú getur reyndu að "Rétta fram eða kasta til, ekki fara út í" Réttu fram eitthvað sem einstaklingurinn getur náð taki á eða kasta til þeirra björgunarhring.