Vilt þú verða leiðbeinandi í skyndihjálp?
Rauði krossinn stendur fyrir leiðbeinendanámskeiði í Skyndihjálp dagana 26. febrúar - 1. mars 2026 á Akureyri.
Tekið verður við umsóknum til 22. janúar 2026
Sækja um
Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á að þjálfa þátttakendur í að kenna skyndihjálp. Þeir sem sækja námskeiðið þurfa því að hafa góða skyndihjálparþekkingu til að byggja á, auk menntunar eða starfsreynslu sem nýtist. Einstaklingar á landsbyggðinni eru hvattir til að sækja um og einnig einstaklingar sem tala þriðja tungumálið.
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðinu er tveggja ára samstarfssamningur við Rauða krossins. Skuldbindingin nemur að lágmarki fjórum námskeiðum á ári (2 – 4 klst námskeið) og er greitt samkvæmt gildandi verðskrá Rauða krossins.
Fyrirkomulag námskeiðsins
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð sem leiðbeinandi í skyndihjálp.
Forkröfur
Til þess að fá að sitja leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp þarf:
- Umsókn að vera samþykkt og námskeiðsgjald greitt
- Að hafa lesið undirbúningsefni námskeiðsins
Lengd námskeiðs
- Undirbúningur á netinu: 10-12 klst
- Leiðbeinendanámskeið: 32 klst
- Hæfnismat: 6 klst (undirbúningur 2 klst og skyndihjálparnámskeið 4 klst)
Hámarksfjöldi
20 þátttakendur
Námskeiðsgjald
Námskeiðsgjald er 250.000 krónur, kennslugögn og veitingar eru innifalin.
Tekið verður við umsóknum frá 3. desember 2025 – 22. janúar 2026
Öllum umsóknum verður svarað í síðasta lagi 25. janúar 2026