• 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
  • EN
  • Mínar síður
  • 0
  • Styrkja
  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
    • Sjálfboðaliðar
    • Félagar
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
    • Um okkur
      • Grunngildi okkar
      • Stjórn og nefndir
      • Starfsfólk
      • Hafðu samband
      • Laus störf
    • Stefnur og lög
      • Stefna 2021-2030
      • Lög félagsins
      • Siðareglur
      • Mannúðarlög
      • Undirstefnur, regluverk og áætlanir
      • Persónuverndarstefna
    • Alþjóðastarf
    • Innanlandsstarf
    • Starfið á landsvísu
      • Starfið í nærsamfélaginu
      • Höfuðborgarsvæðið
      • Suðurnes
      • Vesturland
      • Vestfirðir
      • Norðurland vestra
      • Norðurland eystra
      • Austurland
      • Suðurland
    • Námskeið og viðburðir
    • Fréttir og útgefið efni
  • Verkefni
    • Innanlandsverkefni
      • Flóttafólk og innflytjendur
      • Fataverkefni og endurnýting
      • Heilbrigði og velferð
      • Hamfarir og neyðaraðstoð
    • Alþjóðleg verkefni
      • Alþjóðastarfið okkar
  • Vefverslun
EN 0
Mínar síður Styrkja
  • Innanlandsverkefni
  • Skyndihjálp
  • Námskeið fyrir hópa, vinnustaði og skóla
  • Námskeiðstegundir

Námskeið fyrir hópa, vinnustaði og skóla

Stuðlaðu að öruggari vinnustað með skyndihjálparkennslu Rauða krossins. Hvort sem þjálfunin er hluti af öryggisstöðlum, stefnu fyrirtækisins eða þig langar einfaldlega að efla öryggi á vinnustaðnum geta leiðbeinendur á vegum Rauða krossins boðið upp á sveigjanlegar námskeiðslausnir sem henta þér og vinnustaðnum.

Rauði krossinn býður upp á  vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp, sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og starfsmanna fyrirtækja, bæði hvað varðar lengd og efnistök. Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar. Allt fræðsluefnið er gefið út af Rauða krossinum. Boðið er upp á margvísleg námskeið fyrir hópa og fyrirtæki. 

Þið finnið dag og tíma dags sem hentar ykkur og við komum á staðinn. Hjá ykkur þarf að vera mögulegt að tengja tölvu við skjá/skjávarpa með mynd og hljóði. 

Námskeiðin geta verið haldin á íslensku, ensku eða pólsku. Námskeiðin geta verið haldin hvenær sem er dag, kvöld eða helgi, verðið er alltaf það sama.

Gott er að panta námskeið með þriggja vikna fyrirvara.

Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðum er 15 þátttakendur. Á Skyndihjálp 4 klst, Endurlífgun 2 klst, Slys og veikindi barna og Bjargvættir er heimilt að hafa allt að 20 þátttakendur en greitt er aukagjald fyrir hvern þátttakenda yfir 15.

Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í hámarksfjölda þátttakenda á leiðbeinanda. Einnig er hlutverk og ábyrgð leiðbeinanda gagnvart þátttakendum að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.

Á 4 og 12 tíma námskeiðinu fá allir aðgang að rafrænu skírteini sem hægt er að nálgast á Mínar síður. Einnig þau sem ljúka verklegu námskeiði eftir vefnámskeið. Skírteini eru gild í 2 ár.

Óski fólk eftir upplýsingum um hvaða námskeið það hefur lokið hjá Rauða krossinum má finna yfirlit yfir feril inn á Mínar síður. 

PANTA NÁMSKEIÐ

Eftirfarandi námskeið standa fyrirtækjum og hópum til boða

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja þjálfa sig í grunnatriðum endurlífgunar. Gott námskeið fyrir alla sem hafa lært skyndihjálp áður.

 Lengd

2 klukkustundir 

 Markmið

Að þátttakendur öðlist færni í að beita hjartahnoði og blæstri og kunni að nota hjartarafstuðtæki við endurlífgun.

 Viðfangsefni

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.

 Fræðsluefni

Bæklingurinn „Getur þú hjálpað þegar á reynir?” eða bókin „Skyndihjálp og endurlífgun. Útgefandi er Rauði krossinn á Íslandi.

 Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.

 Námsmat

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi.

 Viðurkenning

Engin. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriði

  • Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun.
  • Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun).
  • Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja)

Verð:

  • 1-15 manns: 108.200 kr.
  • Verð fyrir hvern auka þátttakanda – hámark 5 á hverju námskeiði: 8.500 kr

Námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa lokið vefnámskeiði í skyndihjálp og hafa þannig öðlast grunnþekkingu á skyndihjálp en vantar verklega færni í að veita einstaklingum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeiðið er bæði í boði fyrir fyrirtæki og almenning og er einungis haldið af deildum Rauða krossins.

Lengd

2 klukkustundir 

Markmið

Að auka færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.

 Viðfangsefni

Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED) og hliðarlega.
Áverkar; Aðskotahlutur í öndunarvegi, áverkar á höfði, beinbrot, blæðing, brunasár,
Bráð veikindi; Blóðsykurfall, bráðaofnæmi, brjóstverkur, flog, slag og öndunarerfiðleikar.

 Fræðsluefni

Vefnámskeið í skyndihjálp. Skyndihjálparapp. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn.

 Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 14 ára eða eldri og hafi lokið 2 tíma vefnámskeiði í skyndihjálp með fullnægjandi árangri. Sýna þarf staðfestingu á að vefnámskeiði sé lokið í upphafi námskeiðs.

 Námsmat

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Hvorki skriflegt né verklegt próf.

 Viðurkenning

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur skírteini frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriði

Fjögur skref skyndihjálpar

  • Tryggja öryggi á vettvangi
  • Meta ástand slasaðra eða sjúkra
  • Sækja hjálp
  • Veita skyndihjálp

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð

  • Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun
  • Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun)
  • Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja)
  • Aðskotahlutur í öndunarvegi

Skyndihjálp og áverkar

  • Innvortis- og útvortis blæðingar
  • Bruni og brunasár,
  • Áverkar á höfði, hálsi eða baki

Skyndihjálp og bráð veikindi

  • Brjóstverkur
  • Bráðaofnæmi
  • Heilablóðfall
  • Flog
  • Sykursýki
  • Öndunarerfiðleikar

Verð: 

  • 1-15 manns: 127.000 kr. 
  • Einstaklingur á staðnámskeiði: 13.200 kr.

Ekki er hægt að hafa fleiri þátttakendur en 15. Þátttakendur þurfa að sýna leiðbeinenda staðfestingu á að hafa lokið vefnámskeiði áður en námskeið hefst. 

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.

Lengd

4 klukkustundir með hléum 

Markmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Viðfangsefni

Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.

Fræðsluefni

Bókin „Skyndihjálp og endurlífgun” og kennsluglærur. Bæklingurinn „Getur þú hjálpað þegar á reynir?”. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.

Námsmat

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi.

Viðurkenning

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriði

Fjögur skref skyndihjálpar

  • Tryggja öryggi á vettvangi
  • Meta ástand slasaðra eða sjúkra
  • Sækja hjálp
  • Veita skyndihjálp

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð

  • Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun
  • Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun)
  • Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja)
  • Aðskotahlutur í öndunarvegi

Skyndihjálp og áverkar

  • Innvortis- og útvortis blæðingar
  • Bruni og brunasár,
  • Áverkar á höfði, hálsi eða baki

Skyndihjálp og bráð veikindi

  • Brjóstverkur
  • Bráðaofnæmi
  • Heilablóðfall
  • Flog
  • Sykursýki
  • Öndunarerfiðleikar

Sálrænn stuðningur

  • Streita í neyðartilfellum
  • Tilfinningaleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp
  • Sálrænn stuðningur

Verð:

  • 1-15 manns: 136.400 kr.
  • Verð fyrir hvern auka þátttakanda – hámark 5 á hverju námskeiði: 8.500 kr
  • Einstaklingur á staðnámskeiði: 13.200 kr.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið.

Lengd

 12 klukkustundir 

Markmið

Markmið Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka.

Viðfangsefni

Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp: Áverkar; innvortis- og útvortis blæðingar, sár, brunasár, áverkar á höfði, hálsi eða baki, áverkar á beinum, vöðvum eða liðum, eitranir hitaslag/hitaörmögnun og ofkæling. Bráð veikindi; brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi, heilablóðfall, flog, sykursýki og öndunarerfiðleikar (astmi).
Skyndihjálp framhald; nánari líkamsskoðun, eitrun, blóðnasir, lost, sár og sáraumbúðir, raflost, höfuðáverkar, tannáverkar, skorðun á hrygg, áverkar á brjóstkassa og kvið, vöðvakrampar, sýklasótt, yfirlið og spelkun útlima.

Fræðsluefni

Bókin „Skyndihjálp og endurlífgun” og kennsluglærur.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.

Námsmat

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi en þátttakendum stendur það þó til boða í lok námskeiðs.

Viðurkenning

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriðin eru viðbót fyrir 4 klst. námskeið.

  • Eitranir
  • Hitaslag / hitaörmögnun og ofkæling
  • Lost
  • Blóðnasir
  • Sár og sáraumbúðir
  • Raflost
  • Höfðuáverkar  
  • Tannáverkar
  • Skorðun á hyrgg
  • Áverkar á brjóstkassa og kvið
  • Vöðvakrampar
  • Sýklasótt  
  • Yfirlið
  • Spelkun útlima  

Verð:

  • 1-15 manns: 221.000 kr.
  • Einstaklingur á staðnámskeiði: 22.000 kr.

Námskeiðið er einkum gagnlegt foreldrum, dagmæðrum, starfsfólki dagvistarstofnana, leiðbeinendum á leikjanámskeiðum, kennurum og íþróttaþjálfurum. Námskeiðið er bæði í boði fyrir fyrirtæki og almenning og er einungis haldið af deildum Rauða krossins.

Lengd

4 klukkustundir 

Markmið

Að þátttakendur öðlist færni í að beita skyndihjálp vegna algengra áverka eða veikinda hjá börnum.  

Viðfangsefni

Staðreynir um slys á börnum
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp
Endurlífgun; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi
Skyndihjálp: Áverkar; s.s. blæðingar, blóðnasir, áverkar á höfði, beinbrot, sár, bruni og eitrun. Veikindi; s.s. heilahimnubólga, ofþornun, hiti, flog/krampar, bráðaofnæmi, sykurfall, öndunarerfiðleikar og hiti.
Sálrænn stuðningur við börn.

Fræðsluefni

Bókin „Skyndihjálp og endurlífgun” og kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 16 ára eða eldri.

Námsmat

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Hvorki skriflegt né verklegt próf

Viðurkenning

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur skírteini frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.

Verð:

  • 1-15 manns: 136.400 kr.
  • Verð fyrir hvern auka þátttakanda – hámark 5 á hverju námskeiði: 8.500 kr
  • Einstaklingur á staðnámskeiði: 13.200 kr.

Námskeiðið Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra er ætlað einstaklingum sem starfa sem atvinnubílstjórar og er partur af þriðja hluta í endurmenntun atvinnubílstjóra: Öryggi. 

Námskeiðið er byggt á kennsluefni frá Rauða krossinum og er samkvæmt námskrá Samgöngustofu.

Þátttakendur munu fá  tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum til í að:

  • Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum.
  • Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.

Þátttakendur sem standast endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir atvinnubílstjóra fá útgefið eftirfarandi skírteini: Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra og er það gilt í tvö ár frá útgáfudegi.

Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.

Verð:

Vinnustaðarnámskeið - sjá verðskrá (hlekkur)

Athugið að stéttarfélög bjóða félagsfólki upp á starfsmenntunarstyrki og fyrirtæki sem greiða iðgjald í starfsmenntunarsjóði/- setur geta sótt um fræðslustyrki fyrir starfsfólk sitt. 

Hámarksfjöldi:

15 þátttakendur.

Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í fjölda þátttakenda á leiðbeinenda. Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.

Lengd námskeiðs

6 klukkustundir og 15 mínútur

Samkvæmt námskrá skal námskeiðið vera 7 kennslustundir auk þess sem tekin eru hlé. 

Hver kennslustund er 45 mínútur.

Viðfangefni námskeiðsins

  • Rauði krossinn og útbreiðsla skyndihjálpar
  • Forvarnir og undirbúningur
  • Öryggi og aðstæður
  • Vettvangsstjórn og samstarf við viðbragðsaðila
  • Skoðun og mat
  • Virkja viðbragðskeðjuna
  • Kynning á sálrænni fyrstu hjálp
  • Aðskotahlutur í hálsi
  • Endurlífgun
  • Bráð veikindi
  • Slys og áverkar

Skilyrði fyrir útgáfu skírteinis

Til þess að fá útgefið skírteini í Skyndihjálp: Endurmenntun atvinnubílstjóra þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins.

Kennsluaðferðir námskeiðs eru fyrirlestrar, umræður og spurningar og sérstök áhersla er á sýnikennsla, verklegar æfingar og tilfellaæfingar.

Námsmarkmið

Við lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu, hæfni og öryggi í skyndihjálp, en það felst í því að þátttakendur:

  • Sýni fram á þekkingu og hæfni í forvörnum og undirbúningi sem hluta af umferðaröryggi.
  • Sýni fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi á vettvangi, meta aðstæður og framkvæma skoðun og mat. 
  • Sýni fram á leikni við vettvangstjórnun slysa og í samstarfi við viðbragðsaðila á vettvangi.
  • Geta ákveðið hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð.
  • Geti borið kennsl á og veitt sálræna fyrstu hjálp vegna áfalla. 
  • Sýni fram á þekkingu, leikni og hæfni í endurlífgun, með hjartahnoði, öndunarblástrum og notkun á hjartastuðtæki. 
  • Sýni fram á leikni og hæfni í teymisvinnu í endurlífgun.
  • Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna slysa og áverka.
  • Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna bráðra veikinda.
  • Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna aðskotahlutar í hálsi. 

Fyrir frekari fyrirspurnir, hafið samband á namskeid@redcross.is.

  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
Styrkja
  • Rauði krossinn á Íslandi Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
  • Sími 570 4000
  • Hjálparsíminn 1717
  • Netfang info@redcross.is
  • Kennitala 530269-2649
  • Bankanúmer 0342-26-555
  • Ábendingalína Ertu með ábendingu?
equal-pay-logo