Skyndihjálparkennsla
Beiðni um skyndihjálparkennslu á vegum Rauða krossins
Leggðu inn beiðni hér og við munum hafa samband við þig ef umbeðinn tími er laus til þess að staðfesta pöntun ykkar. Þegar pöntun hefur verið staðfest með tölvupósti þá er sendur út reikningur fyrir námskeiðinu.
Lesið vel yfir upplýsingarnar um greiðslumáta og staðfestingarferli áður en beiðni er send. Athugið að þátttakendur þurfa að vera búin með vefnámskeið fyrir verklegt námskeið ef valið er "Skyndihjálp verklegt 2 klukkustundir"
Stuðlaðu að öruggari vinnustað með skyndihjálparkennslu Rauða krossins.
Hvort sem þjálfunin er hluti af öryggisstöðlum, stefnu fyrirtækisins eða þig langar einfaldlega að efla öryggi á vinnustaðnum geta leiðbeinendur á vegum Rauða krossins boðið upp á sveigjanlegar námskeiðslausnir sem henta þér og vinnustaðnum.
Leggðu inn pöntun hér og við munum hafa samband við þig ef umbeðinn tími er laus til þess að staðfesta pöntun ykkar. Þegar pöntun hefur verið staðfest með tölvupósti þá er sendur út reikningur fyrir námskeiðinu.
Greiðsluskilmálar eru eftirfarandi:
Reikningur er sendur á kaupanda námskeiðs eftir að námskeið hefur verið haldið. Reikningar eru sendir eftir hvert námskeið eða mánaðarlega, eftir því hvað á við hverju sinni.
Hætti kaupandi við námskeið af einhverjum orsökum skal afpöntun berast eigi síðar en með þriggja virka daga fyrirvara. Berist afbókun með minni fyrirvara skal námskeiðiskaupandi greiða 50% af námskeiðsgjaldi. Berist afpöntun með styttri fyrirvara en sólarhring ber námskeiðskaupanda að greiða námskeið að fullu.
Fyrir frekari fyrirspurnir, hafið samband á namskeid@redcross.is