• 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
  • EN
  • Mínar síður
  • 0
  • Styrkja
  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
    • Sjálfboðaliðar
    • Félagar
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
    • Um okkur
      • Grunngildi okkar
      • Stjórn og nefndir
      • Starfsfólk
      • Hafðu samband
      • Laus störf
    • Stefnur og lög
      • Stefna 2021-2030
      • Lög félagsins
      • Siðareglur
      • Mannúðarlög
      • Undirstefnur, regluverk og áætlanir
      • Persónuverndarstefna
    • Alþjóðastarf
    • Innanlandsstarf
    • Starfið á landsvísu
      • Starfið í nærsamfélaginu
      • Höfuðborgarsvæðið
      • Suðurnes
      • Vesturland
      • Vestfirðir
      • Norðurland vestra
      • Norðurland eystra
      • Austurland
      • Suðurland
    • Námskeið og viðburðir
    • Fréttir og útgefið efni
  • Verkefni
    • Innanlandsverkefni
      • Flóttafólk og innflytjendur
      • Fataverkefni og endurnýting
      • Heilbrigði og velferð
      • Hamfarir og neyðaraðstoð
    • Alþjóðleg verkefni
      • Alþjóðastarfið okkar
  • Vefverslun
EN 0
Mínar síður Styrkja
  • Innanlandsverkefni
  • Skyndihjálp
  • Námskeiðstegundir
  • Bjargvættir

Vertu Bjargvættur, vertu tilbúin að bregðast við, tryggja öryggi þitt og annarra og hjálpa í neyð

Bjargvættir

Námskeiðið Bjargvættir er ætlað öllum ungmennum á aldrinum 12 – 16 ára sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar.

Þátttakendur munu fá tækifæri til að öðlast þekkingu, hæfni og öryggi til að veita slösuðum eða bráðveikum skyndihjálp ásamt því að ákveða hvort þurfi að virkja viðbragðskeðjuna og fá frekari aðstoð.

Þátttakendur sem sitja námskeiðið fá útgefið eftirfarandi skírteini: Bjargvættir og er það gilt í tvö ár frá útgáfudegi. Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.

Frekari upplýsingar

Staðarnámskeið Rauða krossins: 11.000 kr. 

Athugið að stéttarfélög bjóða félagsfólki upp á starfsmenntunarstyrki og fyrirtæki sem greiða iðgjald í starfsmenntunarsjóði/setur geta sótt um fræðslustyrki fyrir starfsfólk sitt.  

15 þátttakendur  

Einn leiðbeinandi  

Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í hámarksfjölda þátttakenda á leiðbeinanda. 

Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir. 

  • Rauði krossinn og útbreiðsla skyndihjálpar 
  • Skyndihjálparkeðjan 
  • Grunnverkfæri skyndihjálpar  
  • Öryggi, skoðun og mat  
  • Kynning á sálrænni fyrstu hjálp  
  • Endurlífgun og notkun hjartastuðtækis 
  • Aðskotahlutur í hálsi  
  • Bráð veikindi  
  • Slys og áverkar 

Til þess að fá útgefið skírteini í Bjargvættir þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins. 

Kennsluaðferðir námskeiðs eru fyrirlestrar, umræður og spurningar, sýnikennsla, verklegar æfingar og tilfellaæfingar. 

Við lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa lært skyndihjálp, æft skyndihjálp og geta deilt einföldum aðferðum skyndihjálpar til annarra og þar með verða Bjargvættur, en það felst í því að þátttakendur: 

  • Læri um Rauða krossinn og útbreiðslu skyndihjálpar. 
  • Viti hvað skyndihjálp er.  
  • Geti sýnt fram á hæfni í að veita skyndihjálp fyrir algeng slys og áverka.  
  • Geti sýnt fram á færni í að veita skyndihjálp, eins og endurlífgun þar sem gott hjartahnoð skiptir máli.  
  • Viti hvað hjartastuðtæki er og hvenær það þarf að nota það.  
  • Upplifi öryggi til að hjálpa öðrum sem þarf á skyndihjálp að halda.  
  • Læri um mannúð, umhyggju og að hjálpa öðrum.  
  • Læri um hjálpfýsi (Bystander effect) 
  • Læri hvernig á tryggja öryggi og ákveði hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð. 
  • Lærið og æfið hvernig þið hugsið um líðan ykkar og velferð.  
  • Lærið og æfið að tryggja öryggi ykkar og annarra.  
  • Getið sýnt skyndihjálparfærni í verki. 
  • 1717
  • Aðstoð
  • Sjálfboðastörf
  • Skyndihjálp
  • Öryggi og björgun
  • Um okkur
  • Verkefni
  • Vefverslun
Styrkja
  • Rauði krossinn á Íslandi Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
  • Sími 570 4000
  • Hjálparsíminn 1717
  • Netfang info@redcross.is
  • Kennitala 530269-2649
  • Bankanúmer 0342-26-555
  • Ábendingalína Ertu með ábendingu?
equal-pay-logo