Heimilisáætlun
Af hverju þarf ég heimilisáætlun?
Heimilisáætlun er einföld leið til að skapa ró og draga úr streitu ef upp kemur hættuástand. Markmiðið er að auka öryggi með því að öll á heimili séu með áætlun um hvernig bregðast skuli við hættuástandi. Slík atvik gætu t.d. verið eldsvoði, rafmagnsleysi eða náttúruvá.
Ræðið saman heima:
- Hvar er heimilisfólk yfir daginn (vinna, skóli, leikskóli)?
- Hvernig erum við undirbúin ef samband rofnar tímabundið (t.d. net, sími, rafmagn)
- Hvað tökum við með okkur ef rýma þarf heimilið?
- Hver á að gera hvað? T.d. hver sækir börn í skóla, hver hugsar um gæludýrin, gengur frá heimilinu og svo framvegis
Mikilvægt er að öll á heimilinu taki þátt í gerð áætlunarinnar og að hún sé endurskoðuð reglulega.
Hvar hittumst við?
Heimilisfólk fylgir fyrst og fremst leiðbeiningum yfirvalda og þeirri áætlun sem heimilið hefur sett sér.
Það geta komið upp aðstæður þar sem heimilisfólk er á mismunandi stöðum þegar eitthvað gerist, í vinnu, skóla, leikskóla o.s.frv. Ábyrgðaraðilar ákveða hlutverk sín, hver ber ábyrgð á hverju (t.d. hver sækir börn, hugar að ættingjum sem þurfa aðstoð). Sumir gegna störfum þar sem ekki er hægt að komast frá og því þarf skipulag að taka mið að því (t.d. kennarar, heilbrigðisstarfsfólk).
Gott er að hafa áætlun um hvar er hægt er að gista utan þíns svæðis. Ef það er ekki mögulegt, þá eru fjöldahjálparstöðvar opnaðar í hættuástandi.
- Hvar hittumst við fyrir utan heimilið, t.d í eldsvoða
- Hvar hittumst við utan hverfis, til dæmis hjá ættingjum, vinum eða fjöldahjálparstöð.
Ef boð kemur um rýmingu:
- Fylgið leiðbeiningum yfirvalda
- Taka með nauðsynlega hluti svo sem skilríki, lyf, hlý föt (sjá lista 3dagar.is)
- Tryggið að áður en heimilið er yfirgefið að slökkt sé á öllum raftækjum, skrúfað fyrir vatn og læst.
- Farið á fyrirfram ákveðinn stað.
Mælt er með að undirbúa neyðartösku sem inniheldur nauðsynlega hluti til þess að dvelja utan heimilis svo sem lyf, fatnað og hreinlætisvörur.
Börn í skóla og leikskóla:
- Skólar og leikskólar fylgja sínum viðbragðsáætlunum
Gott er að:
- Vita hver er tengiliður skóla eða leikskóla
- Vita hver má sækja barnið
Ef síma- eða netsamband er takmarkað:
- Haldið kyrru fyrir á öruggum stað og fylgist með fyrirmælum stjórnvalda í fjölmiðlum
- Látið vita af staðsetningu ykkar þegar samband næst
- Ef rýma þarf fer heimilisfólk á fyrirfram ákveðinn stað ef mögulegt
Gæludýr:
- Hafið með fóður og vatn til nokkurra daga
- Hugsa fyrir flutningi á gæludýrum (búr)
Geymið heimilisáætlunina
- Hafið áætlunina á aðgengilegum stað
- Farið yfir hana reglulega og uppfærið ef nauðsynlegt er
Undirbúningur auðveldar viðbrögð við hættuástandi.