Afleiðingar átakanna í Úkraínu teygja anga sína um allan heim, til að mynda aukið fæðuóöryggi í Austur Afríku sem bjuggu fyrir átökin við mikin fæðuskort. Átökin hafa framkallað einn mesta mannúðarvanda síðari tíma. Allt fjármagn sem safnast í neyðarsöfnun Rauða krossins verður nýtt til að mæta þörfum þolenda átakanna í Úkraínu og þeirra sem búa við aukinn fæðiskort í kjölfar átakanna. Rauði krossinn veitir neyðarþjónustu eins og tryggja aðgengi að mat, vatni, heilbrigðisþjónustu, húsaskjóli og veita sálrænan stuðning. Söfnunin nær einnig yfir hjálparstarf Rauða krossins fyrir flóttafólk á Íslandi.
Hægt er að styðja nauðsynlega mannúðaraðstoð Rauða krossins með eftirtöldum leiðum:
- SMS: Senda HJALP í símanúmerið 1900 (2.900 kr.)
- Aur: @raudikrossinn eða 1235704000
- Kass: raudikrossinn eða 7783609
- Söfnunarreikningur Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649
Hvernig lækkar þú skattana þína með því að styrkja Rauða krossinn?
