Alþjóðastarf
Stöðvum helvíti á jörðu
09. júlí 2025
„Hörmungarnar á Gaza eru skuggi yfir mannkyni,“ skrifa framkvæmdastjórar sex íslenskra mannúðarfélaga. „Líf íbúa Gaza eru jafn mikils virði og líf annarra íbúa þessa heims, það ætti ekki að þurfa að taka fram, en engu að síður horfir heimurinn dofinn upp á íbúa Gaza svipta allri mannlegri reisn.“
Grein sem birtist fyrst á Vísi.is 7. júlí 2025:
Orð fá ekki lýst þeirri skelfingu sem ríkir á Gaza. Mannúðarsamtök hafa þó gert tilraunir til þess að finna orð. Forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins hefur sagt ástandið á Gaza verra en helvíti og segir mannkynið hafa brugðist. Talsmaður UNICEF hefur kallað Gaza grafreit barna. Framkvæmdastýra UN Women hefur sagt fordæmalausa eyðileggingu rigna yfir íbúa Gaza. Framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka Barnaheilla hefur líkt lífi allra barna á Gaza við lifandi martröð. Þá hefur Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna, ACT Alliance, sent frá sér ákall þar sem þess er krafist að hjálparsamtök sjái um mataraðstoð undir stjórn Sameinuðu þjóðanna með þeim orðum að val fólksins á Gaza eigi ekki að snúast um að svelta eða að eiga það á hættu að verða skotið til bana í bið eftir mat.
Mannúðarsamtök á við okkar hafa ítrekað varað við afleiðingum þess að alþjóðleg mannúðarlög missi gildi sitt. En við fáum litlu breytt. Hryllingurinn vex dag frá degi og ekki nokkur orð virðast hreyfa við alþjóðasamfélaginu sem horfir á tortímingu samfélags í beinni útsendingu.
Þrátt fyrir það höldum við áfram að reyna, framtíð okkar allra veltur á því. Við viljum ekki heim þar sem alþjóðleg mannúðarlög gilda bara fyrir suma. Ef einstaka ríkjum leyfist að brjóta reglurnar, þá hriktir í öllum grunnstoðum mannúðarlaga. Beiting alþjóðalaga eftir hentugleika ýtir undir þjáningar og refsileysi og grefur undan trausti milli fólks og ríkja. Þannig glata alþjóðleg mannúðarlög verndarhlutverki sínu.
Alþjóðleg mannúðarlög eru skýr. Almennir borgarar eru ekki skotmörk. Konur og börn njóta sérstakrar verndar. Hjálparstarfsfólk skal njóta verndar sem og heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir. Það sama á við um alla aðra borgaralega innviði. Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum verður að leyfa greiðan, óheftan og skjótan flutning neyðaraðstoðar. Alþjóðleg mannúðarlög leggja auk þess sérstaka áherslu á varnarleysi almennra borgara á hernumdum svæðum. Hernámsyfirvöldum ber að tryggja aðgang að mat, vatni og læknisþjónustu.
Við ætlum ekki að þylja upp tölur yfir fjölda barna og fullorðinna sem hafa verið drepin, fjölda kollega okkar sem hafa verið drepnir við störf, fjölda hjúkrunarstarfsfólks, blaðamanna eða annars fólks sem sinnir lífsnauðsynlegum störfum sem hafa verið drepin. Tölur fá ekki lýst þeim harmleik sem á sér stað á Gaza, þótt sláandi séu. Við ætlum ekki heldur að telja upp fjölda óstarfhæfra innviða á borð við sjúkrahús og heilsugæslur, vatnsveitur og skóla, eða fjölda gjöreyðilagðra heimila. Hvað þá að telja upp þær takmörkuðu vistir er þangað fá að berast. Þessar tölur hafa verið taldar upp ítrekað án mikilla viðbragða. Í stuttu máli, þá er Gaza í rúst og mikill meirihluti strandarinnar óaðgengilegur. Íbúar hrekjast í sífellu á milli staða en þeim er endurtekið gert að rýma stærri og stærri hluta strandarinnar.
Hörmungarnar á Gaza eru skuggi yfir mannkyni. Líf íbúa Gaza eru jafn mikils virði og líf annarra íbúa þessa heims, það ætti ekki að þurfa að taka fram, en engu að síður horfir heimurinn dofinn upp á íbúa Gaza svipta allri mannlegri reisn.
Svona þarf þetta ekki að vera. Alþjóðleg mannúðarlög eiga að fyrirbyggja að við mannfólkið búum til helvíti á jörðu. Nú, sem aldrei fyrr, er mikilvægt að við stöndum vörð um þessi lög.
Höfundar eru:
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi
Sigríður Schram, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland
Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Aldrei fleiri samtöl vegna sjálfsvígshugsana
Innanlandsstarf 22. janúar 2026„Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð um að samtölin hafa verið að þyngjast og verða alvarlegri, þá er okkur brugðið yfir heildarsamantekt ársins,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.
Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands
Almennar fréttir 21. janúar 2026„Þróunarsamvinna er grundvöllur friðar, stöðugleika, trausts og öryggis í heiminum,“ skrifa framkvæmdastjórar sex mannúðarfélaga. „Brýnt er að stefna Íslands í varnar- og öryggismálum taki mið af því og að litið verði á öfluga þróunarsamvinnu sem hluta af öryggishagsmunum Íslands.“
Úr einu hestafli í 180 á tæpri öld
Innanlandsstarf 06. janúar 2026Rauði krossinn hefur útvegað og rekið sjúkrabíla landsins allt frá árinu 1926. Á þeim tíma hefur hestöflunum sem notuð eru til sjúkraflutninga heldur betur fjölgað.