Fara á efnissvæði

Almennar fréttir

Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum

06. mars 2026

Aðalfundur Suðurnesjadeildar Rauða krossins verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 18.00 á Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ.

Dagskrá fundarins

  1. Kosning fundastjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.
  3. Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
  4. Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram til kynningar.
  5. Innsendar tillögur skv. 6. mgr. 19. gr.
  6. Kosning deildarstjórnar skv. 20 gr.
  7. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra skv. 8. mgr. 19. gr.
  8. Neyðarvarnafulltrúi kynnir Viðnámsþrótt Suðurnesja, verkefni styrkt af Rio Tinto.
  9. Önnur mál.

 

Kjörgengir í stjórn og atkvæðarétt hafa allir félagar, 18 ára og eldri, sem greiddu félagsgjöld fyrir árslok 2025. Fundurinn er opin öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning. Kosningar í allar trúnaðarstöður deildarinnar eru leynilegar sbr. 9.tl. 19.gr. laga Rauða krossins á Íslandi. 

- Stjórn Rauða krossins á Suðurnesjum.